Djöfull hata ég nágranna mína sem búa í risíbúðinni við hliðina á mér... það var partý þar í nótt, ég meina stórt partý með
stóru Pjéi... óskur og teknó-viðbjóðurinn í botni. Helvítis... svo er þetta alltaf það sama.. fyrst teknó og læti svo upp úr 03-04 tekur Bubbi við með röfli og
,,Hey... mmooobbblll... Róóóómmmeeeooooooo..."-syngj. Dauði og djöfull, ég sem þurfti svo mikið að sofa vel í nótt því það er yfirnáttúrulegt hvað ég þarf að læra mikið í dag... Djöfuls ótillitsemi og skítlegt eðli. Ég gerði það sem mér er illa við að gera og geri mjög sjaldan, hringdi í lögguna. Það er svo hljóðbært á milli, því svefnherbergin hjá mér snúa að stofunni hjá þeim, þannig að þegar ég er með partý þá heyra þau ekki neitt... eini möguleikinn hjá mér er að gera dodo einhverntímann
mjög mjög hátt þegar þau eru að horfa á sjónvarpið... en það gæti orðið bið á þeirri hefningu;-/ Eníveis, það er svo hljóðbært á milli að ég heyri þegar þau slökkva/kveikja ljós og heyrði því allt samtalið við lögregluna... þau lækkuðu jú í sér í smá stund, rétt svona svo maður gæti verið alveg alveg að sofna... svo kom
,,það er engin fiskur í dag......" og tilheyrandi syngj með... Helvítis... það er ennþá partý þarna núna og klukkan er níu... Aumingja Heiða mín, púhú...aarrrggg.... þessi dagur ætlar ekkert að byrja neitt sérstaklega vel, en hey... ef hann byrjar svona illa getur hann varla orðið verri? Neibbsss...