Ummm... notalega græn birtan hérna. Var annars að horfa á forvitnilegan þátt um geimgönguna/sviðsmyndagönguna, þetta hljómaði allt svona lala... athyglisverðir punktar sem komu fram.. en eins og alltaf þá fara þessar samsæriskenningar yfir strikið... Þá er bara spurning hvar við getum troðið framboði Ingibjargar Sólrúnar inn í þetta plott??? Stóð hún ekki bara á bak við þessa sviðsetningu? Veit um eina manneskju sem væri kannski til í að rökræða það af einhverri alvöru... Veit ekki með ykkur, en þegar manni er bent á hluti eins og:
,,af hverju blaktir fáninn á myndinni af tunglinu?"
,,af hverju voru svona djúp fótspor á tunglinu og þ.a.l. af hverju virtist vera raki í jarðveginum?"
,,af hverju voru þeir að taka upp á einvherja venjulega myndavél, sem þolir ekki þennan hita/kulda?"
,,af hverju var ekkert flass á neinum myndum og TVÆR sólir?"
Vissulega spurningar sem eiga rétt á sér og hafa kannski skynsamlega skýringu, eða fáránlga, eins og var haldið fram í þessum þætti... Það var rætt við nægilega háttsetta aðila sem renna fyllilega stoðum undir hluta þessara kenninga. Æji... Ég er viss um að ef það er kafað nægilega djúpt í hvað sem er þá mætti finna ýmislegt (sérstaklega ef þú hefur Bandaríkjamenn sem viðmælendur). Það mætti til dæmis og örugglega finna út að ungrú Levinsky var útsendari bandarísku riffilssamtakana og er í raun og veru kynskiptingur ;-) Hún/hann var fengin til að Clinton segði af sér svo kerlingin hans kæmist til valda... hououououaaahhhh En það var eingöngu gert svo Celsie (heitir hún það ekki?) gæti gifst Mr. Bargerant, en það vill svo skemmtilega til að faðir hans er í stjórn bandarísku riffilssamtakana! Hljómar kannski fáránlega núna... en mark mæ vörds ;-) Það væri gaman að fá að heyra fleiri svona skemmtilegar samsæriskenningar? Hvað með Ingibjörgu og Davíð.. .enda þau í hamingusömu hjónabandi? Heilsast þau með handabandi? Eða bindast ullarbandi? Endilega látið í ykkur heyra...
Af hryllingi no. 25 (janúar) er það að frétta að á morgun verður skoðaður salur og því var stungið upp á því við mig, nota bene, hugmyndin kom EKKI frá mér... en þú hugmynd kom frá samstarfsmanni mínum (hummm... af hverju ætli honum hafi dottið þetta í hug?) að ég setti nektarmynd af mér á boðskortin! Stórfenglegt!!!! Þetta er bara of freistandi... á morgun verður myndin skönnuð inn og boðskortin fara í hönnun... Helvítis Lúxus er þetta að vinna í svona bókaútgáfu, ekkert að gera hjá neinum núna... nema okkur stelpunum ;-/