Bankarán eða ekki neitt?
Minn elskulegi sambýlingur hringdi í mig í offorsi í morgun því hann sá Búnaðarbankann í Háaleiti innpakkaðann í lögregluborðum, löggan handstýrði umferðinni og allt morandi í þeim... við héldum náttlega að bankanum hefði bara verið rænt...eða amk rænt úr honum. Ég gat ekki gert annað en að huxað hlýtt til Heiðu okkar Skúla sem er að vinna þar og var búin að plana í huganum áfallahjálparkaffiboð til að fá henanr hlið á þessu risastóra ráni. Ég fletti upp á mbl.is og hlustaði vel á tíufréttir... neinei.. ekki neitt. Auðvitað var þetta þá út af þessum litla Indlandsforseta... eins og einhver íslendingur komi til með að gera honum eitthvað mein? Við verðum að passa okkur að stíga ekki bara ofan á karlgreyið, þetta litla skinn. En vesenið út af einum manni... hehehe... held hann sé ekki meira en 50 kíló greyið... með tandoríkjúklingnum... heheheh....