Loksins!
Komin í F R Í!! Getsvo svarið það, hefði ekki meikað einn kúnnann í viðbót í dag... Við Hanna vorum tvær í vinnunni í dag en það eru bara helmingi minna starfsfólk en vant er. En það meikaði ekki diff, við Hanna erum svo ótrúlega vinnusamar og léttar á því að þetta var ekkert mál. Að vísu eru aukakílóin sem ég safnaði á mig eftir að ég hætti að reykja eiginlega öll farin aftur og kenni ég gígantísku álagi undanfarið um, það er ágætis megrun að hafa ekki tíma til að borða, vera flökurt af hlutumsemáeftiraðgera-syndrome og hreyfa sig mikið. Ódýrt og einfalt. Að vísu hrasa ég um baugana sem eru undir augunum á mér, en þeir eiga eftir að fara þegar ég næ fullum svefni og ER KOMIN Í FRÍ! kominífríkominífrí... tralalalala... kallinn á leiðinni frá Akureyri og svo er það bara köben á sunnudag... Vildi bara óska þess að það væri sólskin á morgun, góði þú þarna sem ræður veðrinu, endilega láttu sólina skína smá þegar Berglind mín kæra vinkona gengur í hjónaband á morgun... plíííís....? Annars bauð ég mömmsu í kentökký áðan og hún sýndi okkur Alla nýju hendina sína... hver veit nema hún geti prjónað að nýju, kannski klárað peysuna sem ég byrjaði á 1998 (á síðustu öld) og hefur gengið okkar á milli síðustu.. tja, sex ár... Hvað um það.. ég óska ykkur góðrar helgar, nær og fjær, hvar sem þið eruð, hver sem þið eruð :)