Tunglsýki Siggudísar

 

Bloggarar :

    Lilja & co.
    Halla krútt!
    Spunkhildar snilldin
    Þórunn Gréta
    Krumminn:-)
    Kynlegi Kvisturinn
    Ingunn
    Lilja lipurtá
    Bjarni og Elva
    Þráinn Sláinn
    Vibba
    Ásta Yfirnorn
    Gerður
    Siggi Huldar
    Syss
    Die Skelfir
    Svandís
    Skotta
    Heida The Beib
    Ási
    Ari bró
    Sigga Lára
    Gunnella glímudrottning
    Kollý
    Varrius
    Naflaló
    Nafna min
    Skaldid

Skemmtilegir krakkagormar

    R.E.M.
    G.S.M.
    Karitas Kjartansdóttir
    Guðlaug Nóa

Myndir

     Myndir
     Fleiri myndir
     Enn fleiri myndir
     Enn emm fleiri myndir
     Vetur 2007
     Eldgamalt
     Vetur 2008
     Dóttirin fallega
     Mars
     Marokkó
     Apríl & maí
     Sumar 2008
     Sumar 2008 Part Deux
     September 2008
     Október 2008
     November & des 2008

Hreyfimyndir

     Við á Youtube
  

     

Fyrri færslur:


     

    

 


fimmtudagur, janúar 9

Óttastu lítt þó að hægt miði, óttastu það eitt að standa í stað.

Jájá, komst að því í dag að mamma les bloggið mitt... best að taka tillit til þess í framtíðinni ;-) Neinei.. halló mamma! Svo lengi sem Alli skralli kemst ekki í þetta er allt í góðu ;-) Annars er ,,bloggfundur" á morgun svo að þá verður þessi síða tekin í bakaríið og löguð til. Betra commentkerfi er í uppsiglingu, líst vel á það sem Skotta er með og svo skal ég læra að setja sjálf inn linka og drasl. Starfsmenn Eddu tóku próf í dag til að kanna þekkingu sína í íslensku, hún kom á óvart (þ.e. hve lítil hún er)...Smella hér

Þeir sem taka þetta próf og fá lélegt út úr því, örvæntið ei, því það hæsta sem ég hef heyrt að fólk hafi getað fengið er 11 stig. Þá erum við líka að tala um Mörð og Heiðdísi, sem er íslenskusnillingur í dulargervi :-) Spurning um að hafa Fimbulfambið ALLTAF á stofuborðinu og gauka í það af og til...
Var að skoða Dagar Íslands og dagurinn í dag er ekkert smá:
1799-Básendafljóð
1964-Tunnuverksmiðja á Siglufirði brann
1982-Hús Íslensku Óperunnar var vígt
1986-Tilkynnt að Hafliði Hallgrímsson hlyti tónskáldaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir verkið Poemí. Ef einvher hefur heyrt þetta verk væri gaman að fá gagnrýni á það ;-)
1990-Miklar skemmdir urðu á Stokkseyri, á Eyrarbakka og í Grindarvík í stormflóði. Þúsundir fiska köstuðust á land í Vestmannaeyjum. Það hefur verið skemmtileg reynsla... opna gluggann og teygja pottinn út... komin með í soðið ;-)
1991-Hagvarnarráð hélt fund vegna Persaflóadeilunnar....
En... það á ákveðinn maður þrítugsafmæli í dag... það eiga allir þrítugsafmæli í ár... eða næsta ár... eða vonandi einhverntímann ;-)

Nú eru aðeins 4 dagar í að Gummi hætti að reykja... það verður GAMAN að sjá. Jeremy og Meridith sendu mér jólakort í gær, þau voru hér á landi fyrir um ári síðan... komu í ammælisveisluna mína og við sýndum þessum Könum hvernig Íslendingar skemmta sér;-) Þau hafa a.m.k. ALDREI skemmt sér svona vel og biðja geðvekt að heilsa öllum sem djömmuðu með þeim... Verð að deila með ykkur því sem þau sögðu (n.b. þau skrifa eitt bréf til allra um allt árið... langt bréf):
"We loved Reykjavík, especially the nightlife! Neither of us are late night partiers, but when it is dark at 3:00 in the afternoon and stays that way until 11:00 the next morning, there´s no sense of telling when the night should end!"
Þarna hafið þið það! Enn ein afsökun til að djamma!!! Annars er hún ólétt og þau alveg ótrúlega hamingjusöm. Gaman að því ;-)

Comments: Skrifa ummæli