Æjæjæj.... nú er bara próf hjá landafræðingnum mér... þessum litla landafræðing sem ég er, hef nefnilega verið að
blogga þar í vetur líka... svakalegt vinnustuð ;-( Þetta er annars ekkert grín, eins og hægt er að lesa um þar... annars er lítið að frétta, Bjarki bað mig um að fara að selja hjálpartæki ástarlífins með Ástu, ég hélt nú ekki... fundaði með krökkunum á Kaffi List vegna Eddu-h-Tíðarinnar (gad, hvað segir stafsetningareftirlitið við þessari setningu?).. og ekkert merkilegt einhvernveginn. Þetta er búinn að vera svona dagur þar sem maður vill bara vera í sinni skjél og ekki tala við neinn, það er gaman að vera alltaf í stuði og hress og kátur og svoleiðis... en suma daga vill maður bara vera dapur og endurhlaða geyminn. Barði samt engan, þótt mín hefði verið freistað (sérstaklega við þjónustufólkið á Kaffi List, eins og venjulega). Er í einskonar klemmu sem ég á bágt með að feta mig út úr og allt stefir í að maður panti sér tíma hjá sérfræðingi, sér til aðstoðar ;-( Líður samt áræðanlega vel í fyrramálið, verð hrókur alls fagnaðar í vinnunni eða vona það amk vinnufélagana vegna... ég er leiðinleg þegar ég er leið.. geri mér fulla grein fyrir því.
Aumingja Alli minn var í vinastraffi, Play Station straffi og PC straffi í dag... hann átti að finna húfuna sína í skólanum ásamt leikfimisfötunum sínum en fann ekkert... veit ekki hvað ég á að gera við hann á morgun, þá fer hann til Bjössa og þar gilda aðrar reglur. Búin að banna honum að leika við Bjarka vin sinn (það var hann sem sagði við Gumma í afmælinu að mamma hans væri hóra) en ég gaf Bjarka sjéns eftir að ég sá bréf sem Bjarki skrifaði honum. Þar sagði Bjarki að hann hefði næstum því farið að gráta þegar ég bannaði Alla að leika við hann og að hann saknaði hans svo mikið. Þá fékk ég svona viðbjóðshroll á sjálfri mér og fannst sem ég væri vonda stjúpmamman í Mjallhvít og sagði við Alla að hann mætti leika við Bjarka, þær yrðu þá að vera hér og í stöðugu símsambandi við mig. Svo í morgun sá ég að einhver hefði farið hamförum í augnskuggunum mínum, Alli kannaðist ekki við neitt (of kors) og kom eiginlega engin annar til greina en margnefndur Bjarki.. því fór hann á Svarta Listann hjá mér. Þar dvelur hann ásamt Box-Ara (úr Menntó), Indriða, Björgvini og áræðanlega fleira fólki... bara búin að þurrka tilvist þeirra út úr minninu. Best að fara bara að sofa... þeim fyrr sem þessum degi lýkur, þeim mun betra ;-)