Tunglsýki Siggudísar

 

Bloggarar :

    Lilja & co.
    Halla krútt!
    Spunkhildar snilldin
    Þórunn Gréta
    Krumminn:-)
    Kynlegi Kvisturinn
    Ingunn
    Lilja lipurtá
    Bjarni og Elva
    Þráinn Sláinn
    Vibba
    Ásta Yfirnorn
    Gerður
    Siggi Huldar
    Syss
    Die Skelfir
    Svandís
    Skotta
    Heida The Beib
    Ási
    Ari bró
    Sigga Lára
    Gunnella glímudrottning
    Kollý
    Varrius
    Naflaló
    Nafna min
    Skaldid

Skemmtilegir krakkagormar

    R.E.M.
    G.S.M.
    Karitas Kjartansdóttir
    Guðlaug Nóa

Myndir

     Myndir
     Fleiri myndir
     Enn fleiri myndir
     Enn emm fleiri myndir
     Vetur 2007
     Eldgamalt
     Vetur 2008
     Dóttirin fallega
     Mars
     Marokkó
     Apríl & maí
     Sumar 2008
     Sumar 2008 Part Deux
     September 2008
     Október 2008
     November & des 2008

Hreyfimyndir

     Við á Youtube
  

     

Fyrri færslur:

  • desember 2009
  • nóvember 2009
  • september 2009
  • ágúst 2009
  • júlí 2009
  • maí 2009
  • apríl 2009
  • mars 2009
  • febrúar 2009
  • janúar 2009
  • desember 2008
  • nóvember 2008
  • október 2008
  • september 2008
  • ágúst 2008
  • júlí 2008
  • júní 2008
  • maí 2008
  • apríl 2008
  • mars 2008
  • febrúar 2008
  • janúar 2008
  • desember 2007
  • nóvember 2007
  • október 2007
  • september 2007
  • ágúst 2007
  • júlí 2007
  • júní 2007
  • maí 2007
  • apríl 2007
  • mars 2007
  • febrúar 2007
  • janúar 2007
  • desember 2006
  • nóvember 2006
  • október 2006
  • september 2006
  • ágúst 2006
  • júlí 2006
  • júní 2006
  • maí 2006
  • apríl 2006
  • mars 2006
  • febrúar 2006
  • janúar 2006
  • desember 2005
  • nóvember 2005
  • október 2005
  • september 2005
  • ágúst 2005
  • júlí 2005
  • júní 2005
  • maí 2005
  • apríl 2005
  • mars 2005
  • febrúar 2005
  • janúar 2005
  • desember 2004
  • nóvember 2004
  • október 2004
  • september 2004
  • ágúst 2004
  • júlí 2004
  • júní 2004
  • maí 2004
  • apríl 2004
  • mars 2004
  • febrúar 2004
  • janúar 2004
  • desember 2003
  • nóvember 2003
  • október 2003
  • september 2003
  • ágúst 2003
  • júlí 2003
  • júní 2003
  • maí 2003
  • apríl 2003
  • mars 2003
  • febrúar 2003
  • janúar 2003

     

    

 


þriðjudagur, mars 18

-Jájájá... nenni ekki að finna máltæki... finnum frekar hjálpartæki!


Aldeilis, aldeilie... það er nú aldeilis mikið búið að vera um að vera hjá mér undanfarna daga.. hef ekki haft tíma til að blogga, né gogga og þaðan af síður rogga... fyndnin ríður rækjum hér greinilega. Var að skila af mér greinargerð úr greinargerð í Landafræði, Miðhálendi Íslands 2015... helvítis stuð! Gefin út af Umhverfisráðuneytinu og Skipulagsstofnun og kostaði 3000 kall! Helvítis blóðplokk þetta er alltaf, ég sit uppi með kort af hinum ýmsustu stöðum og sé ekki fram á að nýta mér það nokkurn skapaðan hlut eða koma aftur í verð. Finnst að nemendur sem hafa ekki sama aðgang og aðrir nemendur (t.d. þeir sem eru búsettir á Höfn eða Egs.) að námsefni ættu að fá sér styrk fra ríkinu til heimildaröflunar. Vill kannski einhver kaupa Miðhálendi Íslands, Svæðisskipulag 2015-Greinargerð??? Skal selja hana á... ja, 5000 kall... fingraförin mín fylgja með í kaupbæti og hef aðeins notað hana í 5 tíma. Enívon? Hélt ekki...

Annars var þvílíkt tekið á því um helgina.. ójá, einu sinni enn ;-/ Nú skal gert hlé á óhóflegri drykkju... amk þangað til næsta skyldutækifæri gefst;-/ Við Ásta vorum að pæla í að kíkja eitthvað útá lífið á laugardagskvöldið með Sigga S. Kára og fleirum vinum sem maður hittir ekki oft. Við fórum á föstudaginn beint eftir vinni til Bjarka sem vinnur í Erotica Shop til að spjalla.. já og kannski eitthvað versla fyrst maður fær afslátt. Hann bað okkur um að faraí Ríkið í Austurstræti fyrir sig og við jújú, ekkert mál. Svo þegar við erum að fara þangað inn þá eru akkúrat Siggi og Kári á Kaffi Kósý (beint á móti Ríkinu) að nýta sér svona líka agalega sneddý tilboð þar.. þrír bjórar á þúsundkall. Við af sjálfsögðu stoppuðum í nokkra öl þar og það var bara svo gaman að við ákváðum að hendast heim í bað, skúbba mat framan í okkur og beint aftur í stuðið. Þangað kom akkúrat Árni hinn Óði og fylgifiskurinn hans Finnur Ingólfs (sem heitir að vísu Robbi, eða Róbert held ég)... nú við bara beint að spasla í hrukkurnar og komnar aftur um 22 en þá var Árni farin heim en Robbi, Bjarki, Kári og konan hans.. og einhverjir rónar.... hin hressustu. Við nýttum og nýttum okkur þetta tilboð, því aldrei að vita hvenær það hætti. Allt í einu vorum við bara ferlega full og borðið drekkhlaðið bjór og þá varð maður of kors að klára, það er jú dónaskapur að leifa. Við fórum á eitthvað rölt og enduðum á Döbló, þar hitti ég einhvern kvikmyndagerðarmann sem hét ferlega skrýtnu nafni og upphófst mikil rökræða við hann af hverju ég vildi ekki sænga með honum. Sem betur fer kom fasta viðhaldið ásamt fylgifisknum sínum og toguðu mig út og var þá haldið á Astró. Já, ég veit... Astró! Omg... hafði ekki komið þangað inn síðan Maggi réð þar ríkjum. Svo var bara haldið heim á leið og sofnað um sjö. Ekki amalegt þetta, fyrir utan það að það var skyldufyllerý á laugardagskvöldið! Sif vinkona varð þrítug í vikunni og ætlaði hún að bjóða til teitis um kvöldið í tilefni af því. Ekkert nema gott og blessað allt saman. Við Áslaug vorum búnar að ákveða smá dekurdag fyrir hana, náði í hana kl. 12:30 og beint í hárgreiðslu, strípur og læti. Á meðan hafði Ívar platað mig á fund á Hótel Lofleiðum, eitthvað agalegt leyndó eða eitthvað. Okkur grunaði að þetta væri Tupperware-kynning ... ryksugusala eða eitthvað... neinie, eftir 2ja tíma bið þá er þetta Winworld, eða eitthvaðálíka.. netthing eitthvað og maður á bara að borga 225 svissneska franka og þá verður þú milljónari!!! Við Ásta, Árni ofl. bara með gubbuna í hálsinum, ógeðslega þunn og ég stakk af um leið og tími var kominn til að sækja drottninguna úr hárgreiðslu. Brunaði ég með hana til Ísoldar í förðun og Sif var svo fín og sæt eftir þessa útreið... alger rús.. myndirnar á leiðinni. Fór og lagði mig í þrjá tíma, skellti mér aftur bað og beint á djammið aftur. Heima hjá Sif og Gauja var rosa gleði, mikið spjallað, hlegið og allskonar. Svo datt sprengja... Úgníus að verða pabbi!!! Já, allt er nú til... þetta varð af sjálfsögðu til að auka gleðina (þurfti nú að útskýra þetta dulítið, enda samkynhneigður drengurinn í sambandi) og var dansað þar fram á nótt. Um kl. 03 vildi ég fara heim en vildi ekki þó lúlla ein, hringdi á Sigga Möggu sem sótti mig og skutlaði heim... svo mikil dúlla :-) Daginn eftir komst ég ekki á fætur fyrr en um fjögur og uppgötvaði þá að ekki hafði verið vaskað upp alla vikuna... mikið var ég nú léleg húmóðir... arg. En nú skal tekið á því. Ég skal.
Svandís og Jonathan (betur þekktur sem ,,Faðir Jonathan, helgist þitt nafn..." á mínu heimili) koma í kjúklina coscos á morgun og tekur gleðin aftur völd hér í Mávahlíðinni. Júhú!!!!!

Comments: Skrifa ummæli