Gaddem...
... hvað þetta er búinn að vera erfiður dagur :-/ Ekki nóg með að karlhelvítið sem kemur til með að rústa framtíð sonar míns gangi laus og ekkert er verið að vinna í þessari fokking nálgunarkæru sem búið er að leggja fram (sá sem sér um rannsóknina er á námskeiði, gott fólk... löggur þurfa nú einu sinni alltaf endurmenntun að halda til hagsbóta fyrir okkur þegnana) heldur hef ég engann að berja eftir erfiðan dag... :-( Má ekki fara upp í Grafarvog til að lúskra á helvítinu ... það er víst bannað... datt í hug að læðast inn hjá honum og kúka í koddaverið! Held það c góð hugmynd...
Annars hefði ég bara átt að halda mig heima í rúminu, grenjandi og geðvond... dagurinn byrjaði heldur illa. Dreymdi að Einsi færi frá mér, kaldur og sá ekki einu sinni eftir mér... sama hvað ég vældi í honum og gerði... ekki vildi hann taka við mér aftur. Ég vaknaði hágrenjandi og var ekkert lítið glöð þegar ég sá að þetta var eftir allt saman bara matröð... snéri mér að rauðu krullunum á bringunni og hjúfraði mér upp að honum... þess fullviss (og reyndar búin að fletta því upp í Draumaráðningarbókinni) að þetta væri ,,öfugmæli" þ.e. sama hvað gengi á þá væri ég alltaf með þessa rauðu mottu mér við hlið :-)
Mottan mín fríð, mottan mín fríð...
fer þér ekki bráðum að ljúka...
Siggalitla þarf að kúka...
Í koddaverið, tjúja
Í koddaverið, tjúja
... held ég fari og leggi mig...