Skettleg bréf til Jólasveinsins og svör frá honum:
Elsku Jólasvein,
ég vil geimskib i jólagjöv. Ég hev verið góður allt árið.
Þin vinur, Bjössi.Kæri Bjössi.
FRÁBÆR STAFSETNING!!! Þú ert heppinn ef þú færð starf í ruslinu í
framtíðinni. . Hvernig væri að ég sendi þér bók til að þú gætir lært
að lesa og skrifa. Ég gef bróður þínum geimskipið sem þig langaði í,
hann kann að minnsta kosti að skrifa.
Jólasveinninn.
Kæri Jólasveinn.
hvað ert þú að gera þegar það eru ekki jól? Ertu kannski að búa til leikföng?
Erla.
Kæra Erla.
HVAÐ!? Rosalega ertu vitlaus, veistu ekki að öll leikföngin eru búin
til í Kína eins og stendur skýrum stöfum á þeim, kanntu kannski ekki
að lesa? Ég á litla íbúð í Las Vegas þar sem ég eyði mestum tíma
mínum. Þar sit ég, klíp í rassinn á fáklæddum þjónustustúlkum, eyði
peningum í rúllettu og drekk romm í kók. Og svo þú farir ekki að velta
því fyrir þér næst þá geta hreindýr ekki flogið en þau eru ljúffeng í
piparsósu.
Hey!! Þú vildir vita það!
Jólasveinninn.
Kæri Jólasveinn.
Ég veit ekki hvort þú getur hjálpað mér en fyrir þessi jól langar mig
ekki í neitt nema það að mamma mín og pabbi verði aftur saman. Viltu
vera svo góður að sjá hvað þú getur gert.
Eva.Elsku Eva.
Hvað! og eyðileggja þetta eldheita samband sem pabbi þinn á ennþá við
barnfóstruna þína? Hann ***** hana eins og hlera í 20 vindstigum. Ég
er tilbúinn að láta þig hafa Barbie dúkku í staðin.
Jólasveinninn.
Kæri Jólasveinn.
Mig langar í fleiri Yu-gi-oh spil. Allir vinir mínir eiga miklu
fleiri spil en ég.
Þinn Maggi.Kæri Maggi.
Mér er algerlega hulin ráðgáta hvað þið eruð klikkuð að safna þessum
spilum. Sníkið spil af foreldrum ykkar fyrir þúsundir króna og nennið
svo ekki einu sinni að læra leikinn sem er spilaður með spilunum.
Hér hefurðu Lúdó, gamalt og gott spil sem ég gef þér frekar.
Sáttur?
Jólasveinninn.
Kæri Jólasveinn.
Mig langar í nýtt hjól, Playstation, trommusett, Harry Potter lego og
leisergleraugu.
Kveðja, Meyvant.Kæri Meyvant.
Meyvant... MEYVANT. Hver í ansk... gefur barninu sínu nafn eins og
"Meyvant"!? Hvernig væri að ég sendi þér Barbie og Ken, MEYVANT, ha ha
ha ha ha ha. Segðu mér Meyvant, hvað varstu oft laminn í skólanum í
dag? He he he he he he... ho ho ho!
Jólasveinninn.
Elsku Jólasveinn.
Ég er búinn að skrifa þér fyrir hver einustu jól í þrjú ár til að
biðja þig um brunabíl. Ég er búinn að vera mjög þægur allt þetta ár,
viltu vera svo elskulegur að gefa mér brunabíl?
Þinn Jói.Kæri Jói.
ég skal sko aldeilis bæta þér þetta upp. Hvernig væri að ég kæmi eina
nóttina og kveikti í húsinu þínu meðan þú sefur, þá færðu að sjá
fleiri brunabíla en þig óraði fyrir.
Jólasveinninn.
Kæri Jólasveinn.
Mig langar svo óskaplega í hvolp í jólagjöf.
Viltu gefa mér hvolp! Gerðu það elsku besti jólasveinn viltu gefa mér
hvolp, gerðu það, gerðu það.
Þinn vinur Reynhard.Reynhard!
Þessi sníkjutónn og suð virkar kannski á foreldra þína en hann hefur
þveröfug áhrif hér, Þú færð lopapeysu eins og í fyrra.
P.s. þú er ekki skyldur Meyvant, er það?
Jólasveinninn.
Elsku besti Jólasveinn.
Það er enginn strompur á húsinu okkar, hvernig kemur þú inn.
Þinn Biddi.Brynjar!
Í fyrsta lagi: Hættu að kalla sjálfan þig þessu ónefni "Biddi". Þetta
er ein af ástæðum þess að þú ert laminn í skólanum nær daglega.
Í öðru lagi: Þú býrð ekki í húsi! Þú býrð í félagslegri íbúð vegna
þess að kerlingin, sem segist vera móðir þín, nennir ekki að vinna og
gerir sér upp örorku.
Í þriðja lagi: ég kemst einfaldlega inn eins og glæpamenn komast inn
- inn um svefnherbergisgluggan þinn!
Dreymi þig vel.
Jólasveinninn.