við ætlum að gera tilboð í
eina eign í dag.. svo er bara að bíða og sjá hvort því verður tekið... þau eru víst að skilja og allt komið í hnút, leiðinlegt að hagnast á óförum og óhamingju annara, en eins manns dauði er annars manns brauð...
Ójá, gleymdi næstum.. er ekki barasta
pabbi að koma í kaffi á morgun... þá hittir hann í fyrsta sinn Einsa... Vona að Einsi skili mér ekki í föðurhúsinn... hann er svolítið skrýtinn karlinn... eða kannski finnst mér það bara því ég held að við séum mjög lík...
Sunnudagur til sælu... sérstaklega þegar mar er ekki þunnur, ennþá fullur eða e-ð þaðan af verra... :-)
Hef ekki nennt að blogga mikið undanfarið.. hef lítið að segja... búum samt ennþá í Mávahlíðinni og erum ekki búin að kaupa okkur draumaeignuna.. ekki ennþá. Vorum róleg þessa helgi, til tilbreytingar enda báðir drengirnir hjá okkur og stanslaust stuð á þeim vígstöðvum... Alex Skúli er alveg búinn að missa alla trú á mér sem kokki, því mér tókst að brenna
illilega kvöldmatinn í gær, nöguðum brunarústirnar af beinunum... Annars var gærdagurinn einn af þeim betri sem við höfum átt saman. Engin æfing.. bara gera það sem okkur datt í hug. Enda var illilega slakað á, fórum í Bláa Lónið og sáum Batman crewið, þam
karlinn sjálfann... hann er barasta nokkuð sætur, í sundskýlu með hvíta drullið framan í sér... keyptum bakkelse í bakaríi, lásum, lögðum okkur, borðuðum svo þessar brunarústir við
hátíðlega athöfn.. . horfðum á sjónvarpið, borðuðum meira og sváfum svo frameftir í morgun... hin príðilegasta helgi. Svo fara strákarnir á Sirkus í kvöld og verður forvitnilegt að sjá hvernig/hvort þeir skemmta sér á henni. Mikið hlakka ég til að geta boðið Alex Skúla sitt eigið herbergi... leiðinlegt að vera á dýnu á gólfinu og hafa ekkert af sínum hlutum hjá okkur, sökum plássleysis.
... en mikið var gaman að vakna í morgun og vera ekki einn af þeim fjölmörgu sem huxuðu ,,Ég ætla aldrei að drekka aftur..." Fint að taka eina helgi í afslöppun og kjötbollur á miðvikudegi... það hefur verið lítið af því undanfarið... Varð vör við það að það var Austfirðingaball á föstud.kv. á sms formi... og svo eitt dularfullt sms í gærkvöldi... kannski er einhver sem er að renna til mín rómantísku auga? Eða bara sent þetta á vitlaust númer... að huxa sér... við E. erum búin að vera formlega saman í eitt ár núna í endaðan mars... há tæm flæs venn júr heving fönn.... ef einhver spákona hefði sagt við mig fyrir ári síðan að ég stæði í þessum sporum sem ég stend í núna ári seinna... vá, hvað ég hefði flogið hratt út um gluggann... Núna er það bara flæ on þe víngs of lov... fyndið...
Drullaðist loksins til að setja
Þórunni Grétu hér til hliðar, sorrý ástin mína hvað þetta tók langan tíma... ég er oft svolítið treg og sljó... kenni engu um nema mér sjálfri... :-)