Ljót lygasaga af minningu lítillar stúlku
Móðursystir mín er Fríða Magnúsdóttir sem hvílir í Hólavallagarði og lést þegar hún var 6 ára úr veikindum, botnlangabólgu réttara sagt. Fyritæki eitt hefur haft af því atvinnu að enda gönguferð við leiðið hennar og fara með svo ,,ógeðslega ljótar sögur að ég get varla sagt þær" (samkv., ,,leiðsögumanninum" sjálfum í Síðdegisútvarpinu)...
Hér eru nokkrir linkar á málið:
Síðdegisútvarpið (hér fer Jónas á kostum í mótsögnum og setur að ég held heimsmet)
Vísir (skemmtilegt að lesa síðustu setninguna)
PressanDabbinnFjölskyldan hefur kosið að tjá sig ekkert um málið, það er bara of nákomið okkur til að við getum eitthvað verið að tala hlutlaust við þennan mann, eða það á við um mig amk... maðurinn ætti bara að halda sig erlendis, við spjörum okkur ágætlega án hans... lifandi sem látnir. Það er mín skoðun, Sigríðar Hafdísar Benediktsdóttur, dóttir mömmu minnar - stefndu mér ef þú vilt - ég skal bíða eftir þér í réttarsalnum ;)