Tunglsýki Siggudísar

 

Bloggarar :

    Lilja & co.
    Halla krútt!
    Spunkhildar snilldin
    Þórunn Gréta
    Krumminn:-)
    Kynlegi Kvisturinn
    Ingunn
    Lilja lipurtá
    Bjarni og Elva
    Þráinn Sláinn
    Vibba
    Ásta Yfirnorn
    Gerður
    Siggi Huldar
    Syss
    Die Skelfir
    Svandís
    Skotta
    Heida The Beib
    Ási
    Ari bró
    Sigga Lára
    Gunnella glímudrottning
    Kollý
    Varrius
    Naflaló
    Nafna min
    Skaldid

Skemmtilegir krakkagormar

    R.E.M.
    G.S.M.
    Karitas Kjartansdóttir
    Guðlaug Nóa

Myndir

     Myndir
     Fleiri myndir
     Enn fleiri myndir
     Enn emm fleiri myndir
     Vetur 2007
     Eldgamalt
     Vetur 2008
     Dóttirin fallega
     Mars
     Marokkó
     Apríl & maí
     Sumar 2008
     Sumar 2008 Part Deux
     September 2008
     Október 2008
     November & des 2008

Hreyfimyndir

     Við á Youtube
  

     

Fyrri færslur:


     

    

 


miðvikudagur, desember 27

Best að henda inn einni síðb.jólakv. eða svo 

Gleðileg Jólin öll sömul, til sjávar og sveita. Vonanandi höfðu allir það gott, átu, drukku og voru glaðir. Bergle mín átti ammli á aðfangadag, sem og elskulegur fósturpabbi minn - en hann vissi lítið af því hvaða dagur var. Vaknaði við það að 13 jólasveinar ruddust inn í herbergið hans á Dvalarheimilinu og sungu fyrir hann hástöfum ammlissönginn :) Hann vaknaði amk almennilega við þetta :) Bergle fagnaði 33ja ára í skjóli aðfangadags, eins og endranær og óska ég henni og öllum hennar til lukku með það (minnir mig á það... þarf að fara að koma þessari blessuðu sængurgjöf til hennar - áður en barnið vex upp úr brókinni... að ekki sé minnst á Svöndu Pöndu... hennar sængurgjöf er hér enn... búin að útbúa pakkann oft til hennar - borða bara alltaf nammið sem ég er að senda út svo það frestast alltaf út í hið óendanlega... djíses... er ég að skrifa þetta upphátt?)

Fékk agalega ósmekklegt sms frá Donmino's, dulbúin auglýsing í formi jólakveðju og sendi framkvæmdastjóranum hatursfullan tölvupóst í kjölfarið á því - kem aldrei til með að versla við þetta fyrirtæki og sagði honum að mér þættu pizzurnar þeirra ekki einu sinni góðar - eina ástæðan fyrir því að mar verlsar við þetta fyrirtæki er að mar fær alltaf eina fría með. Ætla að versla við Papino's í staðin (59 12345) Veit að það kemur ekki einu sinni svar frá þeim - en það er ok. grrr... finn að pirrringurinn er að ná h-marki...

Sá svo í Mogganum að það er farin af stað enn ein söfnunin til handa fólki sem nennir ekki/týmir ekki að tryggja sig. Svoleiðis fólk, finnst mér, á að vinna sér inn fyrir næstu búslóð sjálft... takk fyrir... óskaplega gott að enginn meiddist eða neitt slíkt í brunanum (ekki halda að ég sé vond manneskja) en það er farið að fara óskaplega í taugarnar á mér þegar fólk ákveður að tryggja sig ekki... þá er því bara reddað... þegar þú ákeður að tryggja þig ekki þá verður þú að bíta í það súra þegar að því kemur að missa búslóðina... sorrý... ég er búin að borga iðngjöld í of mörg ár til að hafa vorkunn fyrir svona fólki... (grrr... þrjú símtöl við Vodafone og tvö til Símans í dag gera kraftaverk hvað varðar góða skapið - það hverfur!...eða gerði það hjá mér í morgun eins og má glökkt lesa á milli línanna... bezt að snúa sér að einhverju sem kemur manni í betra skap)

Eiríka Benný, bróðurdóttir mín, elskuleg eignaðist sitt fimmta barn í gær (stúlku) - þetta var barn númer fimm hjá henni - stelpan er 27 ára... og ef ykkur finnst það ekki nóg... þá útskrifaðist hún sem sjúkraliði nokkrum dögum fyrir fæðinguna... Svona konur eru aðdáunarlegar, svona konur á að virkja.. Fokk Kárahnjúkar - virkjum íslensku konuna! (...sem tryggir sig)

Óver end át!

Comments: Skrifa ummæli