Djæsús Kræst...
nenni ekki að eyða meiri tíma í Webshots, en þeir eru með stæla við mig þegar ég er að setja inn fermingarmyndirnar ... en þær koma, bílívjúmí :-)
En hér er ein svona til að stytta biðina hjá þeim sem langar að sjá hvað ,,litli" strákurinn minn er orðinn mannalegur og eitthvað... fullorðins... :-)

Fermingardagurinn var frábær í alla staði, hefði að vísu viljað hafa meiri tíma fyrir gestina en maður getur ekki kallað allt himnaríki :-) Athöfnin var hin skemmtilegasta, Halla hélt tölu og Gunnar Hersveinn einnig, en mér fannst það frábært... sérstaklega þar sem Alli er svolítið EF-barn, en við vorum að leika í þeirri Rokkóperu þegar við drógum okkur saman ég og Bjössi :-)* Þarna var fermingarstjóri (ekki neinn prestur) sem stýrði athöfninni áfram og börnin voru með tónlistaratriði, ýmist klassíska tónlist eða flösuþeytingur af rokkuðustu gerð :-) Svo brunuðum við í veisluna og Alli voða mannalegur heilsaði öllum sem komu og hélt smá tölu, bauð fólkið velkomið og eitthvað... agalega mikill herramaður eitthvað :-) Hann fékk fullt af gjöfum, lappa frá okkur, custom meid gítar (7 strengja, takkfyrirtakk) frá babbs og Hafdísi, reiðhjól frá Ömmunóu og nokkur hundruð þúsund að gjöf... Hann var svo hræðrur þegar hann var að opna gjafirnar :-) Þarf bara að pína hann í þakkarsímtöl til þeirra fjölmörgu sem huxuðu til hans á þessum stóra degi :-) Við vorum svo búin að þrífa eftir veisluna og taka allt til um níu um kvöldið - frekar glöð með hvað það gekk vel að ganga frá ... enda hafði ég tvo mjög duglega pilta mér til aðstoðar :-) Að lokum er svo hér mynd af mér og bestutubestu vinkonu minni sem hjálpaði mér ómetanlega með að framkvæma þetta allt saman :-)

I Love You Man!
*) EF er eins og allir vita samin af Gunnari Hersveini, Möggu Gutt ofl.