Í Mogganum í dag
Í Morgunblaðinu í dag, sunnudag er lítil og sæt hugvekja í Velvakanda. Velvakandi er yfirleitt vettvangur auglýsinga eftir týndum páfagaukum og kvartana yfir sóðasakp og ókuteisi en að þessu sinni getur að líta svolítið sem mig langar til að deila með ykkur. Hugvekjuna skrifar maður undir sem heitir Böðvar:
Vor í Vaglaskógi
Ó hvílík fegurð, hvílík dýrð og lóan syngur sitt dýrðarinar dí. Þetta er það sem kemur upp í huga minn bjarta sumarmorgna, sitjandi við eldhúsborðið að sötra morgunkaffið, nývakinn af fuglasöng. Já, það er vor í lofti. Vorið, tími lautarferða og rauðköfflóttra vaxdúka. Mér líður eins og ég sé kominn alla leið á Nautnaeyju þar sem ég gæði mér á frönskum rauðvínum, ostum og vínerjum. Þetta er sérstaklega ánæjulegar stundir eftir að hafa setið inni svo hrímköldum vetrarmánuðum skipti. Þá get ég loks svipt af mér gráfeldinum og flogið út um gluggann ásamt hinum smáfuglunum. Þá hvet ég landann til þetta að hrista af sér senið og njóta hinna fáu sumardaga og -nátta sem bjóðast okkur hér á Fróni. Ljáum okkur vængi.Njótið helgarinnar, elskurnar :-)