Daman gisti í fyrsta sinn að heiman á laugard.kvöldið.... og þá er ég ekki að tala um mig :-) GN fór til uppáhaldsíns og var víst svo hroðalega ljúf og góð að annað eins hefur ekki sést - hún var amk mikið mun þægari og til miklu meira friðs en nokkrum sinnum hjá Gamla Settinu - hvernig sem stendur nú á því. Gamla settið fór á mannfögnuð mikinn með minni familíju - en Gunni Rikk frændi minn átti 20 ára brúðkaupsafmæli með Rosu sinni og auk þess verður hann fimmtugur núna í júní - svo það var ákveðið að koma þeim á óvart með suprise veislu. Heppnaðist hún ógurlega vel og var gaman að hitta liðið án þess að vera í jarðaför eða skírnarveislu :-) Gunni þessi hefur unnið í félagsmiðstöð Garðabæjar síðan hann hætti að hafa góða afsökun til að stunda hana og hafa margir haft góð og skemmtileg kynni af honum í gegnum tíðina. Nokkrar ræður voru fluttar, Gunni frændi tók lagið (Wild thing MEÐ hinum Gunnarinum í familýjunni, sem er bæjarstjórinn í Garðabæ) með einhverju fyrirbæri sem hét Gullfiskarnir... en þegar Jónsi stökk fram ásamt Sjonna Brink þá datt af mér kjálkinn og ég dó úr hlátri - þá eru þeir semsé undanfari Í svörtum fötum og ólust upp í félagsmiðstöðinni hjá Gunna frænda og tækjakostinum hans... þetta fannst mér vera alveg ógurlega fyndið og skemmtilegt - enda komin á 3ja bjór :-) Við fórum svo snemma heim, hjónaleysin - og skiðum í koju einhverntímann eftir miðnætti, iðandi í skinninu eftir að fá að sofa ,,út" - þ.e. hafa engan lítinn kropp sem tekur allt plássið og vaknar á 2ja tíma fresti. En af sjálfsögðu endaði þetta þannig að ég var alltaf að vakna, því mér brá svo við að það var engin aukretis í rúminu og hélt hún væri að detta fram úr - svo vaknaði ég bara að hreinum söknuði allt allt of snemma og nennti ekki að vera þunn og sofa meira - langaði miklu meira til að ná í dömuna og gera eitthvað skemmtilegt í góða veðrinu. Svo ég brunaði til Heyju og endurheimti mitt innra sjálf :-) Get samt ekki líst því hvað maður hafði gott af því að vera algerlega áhyggjulaus og hafa þetta víðtæka frelsi... rosalega lifði maður öðruvísi lífi fyrir 2 árum síðan en í dag :-/
Hvað um það... hér er svo nýjasta tískan hjá dömunni - stanslaust verið að æfa þetta: