Jahérna hér... nú er föstudagskvöldið allt að koma í ljós. Semsagt búin að komast að því að mitt lið semsagt vann, fengum gjafabréf á pylsur og kók í Hjartarbúðinni, verðlaunapeningurinn sem ég tók heim fékk ég ,,að láni" frá Hrannari fyrrv. borgarfulltrúa, fyrirtækið stendur víst á öndinni yfir meintum ástarþríhyrningi sem ég stend í þessa dagana (það er fyrir utan þennan gifta sem er mitt venjulega viðhald) og allir enduðu á Nasa (veit ekki af hverju, svei mér þá) og dönsuðu frá sér allt vit... nema af sjálfsögðu Sigga gamla, sem drafst upp í rúmi með tvo Hlöllabáta sér við hlið. Gaman að þessu öllu saman.
Annars er ég að fara í smá aðgerð í vikunni og þess er krafist að maður skerði ekki hár á líkama sínum, hætti að raka á mér lappirnar á miðvikudaginn og satt best að segja er þetta frekar ömurleg tilfinning, mér finnst ég vera loðin, loðin og aftur loðin, mig klæjar og þetta er ekki skemmtilegt... stúlkur mínar, njótið þess að geta notið þessara sjálfsögðu mannréttinda... herrar mínir, njótið stúlknanna;-)
Bolludagurinn á morgun... mmmmm........ nammi....... Að vísu tapaði United í dag, en það er Bolludagurinn á morgun svo þá er allt í lagi. Man eftir því einu sinni í Menntó (eins og þau ár séu búin?) að þar var hræðilega leiðinleg stelpa sem var líka ömurlega ljót og feit og ég var svo ömurleg líka að ég óskaði henni alltaf til hamingju með daginn á Bolludaginn... svona gat/getur maður verið grimmur. Hún var að vísu þá nýbúin að sofa hjá kærastanum mínum, þannig að ég mátti alveg vera leiðinleg við hana... stelputíkin. Drengurinn fékk það líka óþvegið, heyrði síðast af honum í sambúð með einni sem átti tvö börn fyrir og bjó á Norfirði! Þurfti ekkert að vera leiðinleg við hann... hann gróf sína eigin gröf;-))) Veit ekki alveg af hverju ég er að hugsa um þau... liggur við að manni langi ekki lengur í Bollurnar sem ég keypti dýrum dómi í Kringlunni í dag.
Já fyndinn dagur í dag hjá okkur Hildi Sif... kringlan á sunnudegi er ekki það bestasta besta í heimi hér, en ég fékk Alla til mín kl. 16:30 svo þetta er allt í gúddý. Hann var búinn að vera hjá pabba sínum, eða réttara sagt Ótéttu Hafdísi, síðan á miðvikudaginn og við erum búin að vera eins og ja... ég veit ekki hvað... kannski ekki eins og ástfangnir unglingar... nei, ekki hægt að segja það, en það er mikið flissað, knúsað, kjammsað og kitlað hér í bæ... engin erótík... ónei, bara gleði. Eníveis, það kom til okkar stúlkukind í dag, virkaði frekar saklaus og hún fer að spá svona líka mikið í Galdrastelpunum (klúbburinn sem við vorum að kynna).
Hún eitthvað...:
,,ja, má ég spyrja hver er að gefa þetta út?"
Hildur Sif:
,,Edda-útgáfa"
Hún:
,,Ja... afi minn er að vinna þar..."
Ég:
,,Hvað heitir hann?"
Hún:
,,Björgólfur Guðmundsson, hann getur kannski reddað mér einu fríeintaki"
RÆT! Maðurinn keypti Eddu útgáfu fyrir klinkið sitt! Hann er á góðri leið með að eignast Ísland! En annars er hann alveg frábær karl, hress og alveg á jörðinni, hann heldur greinilea auðævum sínum fyrir sjálfan sig...he he he...
Best að pósta þessu áður en allt hrynur... var annars að fá myndirnar í sumarbúsaðaferðinni og set einhverja á netið, aðrar eru svo ólöglega ótrúlegar að ég verð að læsa þeim albúmum og hleypa bara vissum einstaklingum í... he he he...