Okkur Alla til mikillar skelfingar höfum við stoppað við sjónvarpið undanfarna tvo daga um fimmleytið og horft sem dáleidd á Gæding Læt... Mamma henna Blake var að koma að henni í rúminu með fyrrverasni kærastanum sínum (sem er á leiðinni í framboð til Öldungaþings), Alexandra Spaulding var að gera Alan-Michael að erfingja númer tvö og hann er í rosalegri fýlu, meðan konan hans (leikin af Syd lækni úr þáttunum þarna á Skjá Einum) var að duflast í einhverjum gæja sem var aftur að reyna að grafa upp einhvern óhróður um fyrrnefndan öldungadeildarþingmann.... aaahhhhh, hélt að þetta væri eitthvað algert bull, en af þessum tveim þáttum sem við höfum horft á þetta er þetta agalega skemmtilega snúið, dramað keyrt úr hófi fram og bara hin fínasta afþreyging... ég vil samt ekki horfa á meira... Nú er Disneymynd í sjónvarpinu sem ég get ekki með nokkru móti horft á... hundleiðinleg. Er að spá í að fá mér Malibu í eplasafa... ætli það smakkist vel? Eða á maður bara að láta klakan duga? Æm bord..... Alli átti að fara til Bjössa í dag, en Bjössi var ekkert búin að gera ráð fyrir því, þar sem Hafdís hin ólétta er bráðlega ekki svo mikið ólétt og eitthvað var bumbunni snúið í dag, svo þau eru væntanlega heima að horfa á klukkuna... ha ha ha... þau eiga eftir að bíða í nokkra daga áður en nokkuð gerist, hún ekki komin á tíma fyrr en á morgun... og fyrsta barn... djöst jú veit.
Einar Ingi á afmæli í dag... hann er 2ja.. fór og keypti handa honum hljóðsnældu í dag, vildi ekki fara að gefa honum bækur í afmælisgjöf (hann fær bækur nánast í hvert sinn sem hann kemur í heimsókn), því ég gef alltaf bækur í afmælisgjafir... nema þegar einhver á stórafmæli, þá er gefin annaðhvort stór bók eða gjafabréf... hvað á maður að vita hvað fólk vill í afmælisgjafir? Hvað á maður að vita yfirleitt?