Letiblogg...
Það er varla að ég nenni að blogga þessa dagana, ekki það að það sé lítið búið að gerast hér á bæ - heldur meira það að ef mar tjáir sig er von á að það sé einhver nafnlaus að hrauna á mann... sem er ekki skemmtilegt. Ætla því ekki að tjá mig um Jón Pétursson, dæmdan ofbeldismann og nauðgara né neitt annað sem getur þyrlað upp fallegu yfirborðinu. Höfum bara yfirborðið slétt og fellt...
Við Alli ætlum að fara til mömmsu og Kolla um helgina, fæ að fara fyrr úr vinnuni á föstudaginn til að geta mögulega brunað þetta í dagsbirtu. Alli fékk 9.3 út úr enskuprófi - hann er svo afskaplega duglegur og gáfaður þetta barn... vildi samt óska að áhuginn og metnaðurinn myndi ná yfir dönskuna líka en í síðasta prófi var meðaleinkunin undir fimm hjá bekknum og einkunin hans Alla reif hana ekkert upp. Við ætlum að gera átak í dönsku á heimilinu og ætli mar endi ekki með heimilishaldið eins og það var hjá Philip Vogler... enska f.h., danska e.h. og íslenska á kvöldin... eða hvernig sem það var... það fannst manni fyndið á sínum tíma... but it works! Kenndi Alla ensku á mettíma áður en við fórum til Svöndu Pöndu á sínum tíma með því að tala við hann á ensku á kvöldin... en enskan liggur kannski betur við en danskan... gæti vel trúað því...
Auglýsi hér með eftir rafvirkja sem getur komið og gert við þurrkarann minn (líklegt að það sé einhver atvinnulaus rafvirki að lesa bloggið mitt... keep on dreaming, girl!). Talaði við umboðið og það er ekkert ódýrt að láta gera við svona... þeir geta sent mann heim fyrir mann til að kíkja á hann, ef hann er undir hálftíma að komast að biluninni þá kostar það BARA sjöþúsund... ef ég tek sjéns og kaupi nýtt element þá kostar það tíuþúsund og ekki er hægt að fá annan varahlut fyrir það ef það er síðan ekki elementið sem er bilað... ég er sjálf að verða biluð á öllum þvottinum sem hrannast upp því það er ekkert spaug að reka heimili með bilaðann þurrkara og bara eina þurrkugrind. Langar til að næla mér í viðgerðarmann sem getur komið, bent mér á bilunina og fengið köku í kaupbæti :) Ef hann er heppinn og kemur um kvöldið er alveg líklegt að hann fái dönskukennslu að auki ...