4 Ár!
Í fjórtánhundruðsextíuogeinndag höfum við Einar átt í innilegu sambandi - sem teljast vera heil fjögur ár í dag. Í tilefni dagsins ætla ég ekki að vera geðill, úrill og viðskotaill við hann - skellti mér í pils og háa hæla í morgun og vakti kallinn með ástarsöng. Söng fyrir hann lagið þarna I will alway loooove you - ekki til að tjá tilfinningar mínar heldur af einskærri illkvittni - því ég vona að hann verði með þetta lag límt við heilann á sér þangað til hann fer á lappir :-)
Ég man vel eftir því þegar við byrjuðum að ,,deita" en sem betur fer gerðist það á okkar hraða og með okkar formerkjum og útkoman er eitt besta samband sem ég hef átt um ævina, enda er hér á ferðinni mikill mannkostur sem sér alltaf rökrænu og vitrænu hliðina á öllum málum. Tvíburinn í honum heldur vatnsberanum mínum á jörðinni, er góð jarðtenging og þrátt fyrir að hann hafi ítrekað hafnað bónorðum mínum ætla ég samt sem áður að gefa honum meira af sjálfri mér í framtíðinni því ég elska hann ótrúlega mikið (er kannski í tísku að lýsa yfir ást sinni á þessum manni á internetinu?) :-)
Hann fer að spila póker á laugardaginn, en ef hann vinnur það mót förum við til Vegas á eitthvað ennþá stærra mót þar og ég hef alltaf vitað að ef ég gifti mig þá verður það þar... af presti sem er klæddur eins og Elvis. Þannig eru brúðkaupsferðarplönin mín og ef af þessu verður þá kemur Einsi til með að spila eins og m***f*** í fimm daga meðan ég fer niður Gran Canion í River Rafting... rómantískt, ekki satt?
Annars má sjá kallinn frumsýna Epli og ekrur á föstudaginn, hlakka til að sjá hann taka einn djúpann með annari konu...
úfff... við hljómum eins og við séum svolítið skrýtið par... :/