Tunglsýki Siggudísar

 

Bloggarar :

    Lilja & co.
    Halla krútt!
    Spunkhildar snilldin
    Þórunn Gréta
    Krumminn:-)
    Kynlegi Kvisturinn
    Ingunn
    Lilja lipurtá
    Bjarni og Elva
    Þráinn Sláinn
    Vibba
    Ásta Yfirnorn
    Gerður
    Siggi Huldar
    Syss
    Die Skelfir
    Svandís
    Skotta
    Heida The Beib
    Ási
    Ari bró
    Sigga Lára
    Gunnella glímudrottning
    Kollý
    Varrius
    Naflaló
    Nafna min
    Skaldid

Skemmtilegir krakkagormar

    R.E.M.
    G.S.M.
    Karitas Kjartansdóttir
    Guðlaug Nóa

Myndir

     Myndir
     Fleiri myndir
     Enn fleiri myndir
     Enn emm fleiri myndir
     Vetur 2007
     Eldgamalt
     Vetur 2008
     Dóttirin fallega
     Mars
     Marokkó
     Apríl & maí
     Sumar 2008
     Sumar 2008 Part Deux
     September 2008
     Október 2008
     November & des 2008

Hreyfimyndir

     Við á Youtube
  

     

Fyrri færslur:


     

    

 


miðvikudagur, nóvember 5

Hver þarf svosem að sofa??? Ekki ég... :-/ 

Daman heldur áfram að vera jafn yndisleg og henni er tamt en svefninn er alveg að fara í ruglið bara :-( Við tókum hana af þessum lyfjum eftir viku enda gerðu þau lítið gagn og voru alls ekki áhættunar virði ... hún svaf lítið betur, eitthvað þó - og vaknaði ekki ,,nema" svona 5 sinnum fyrir miðnætti að meðaltali sem er aðeins minna en vanalega. Svo við bara nenntum þessu ekki - bæði var líka orðið slagsmál að koma þessari drullu ofan í hana og svo var það þessi áhætta með öndunarstoppið. Mér er lítið sama þótt þetta hafi verið reynt í mörg ár og ekkert slys gerst enn - en ef það er tekið fram að það sé einhver áhætta þá hefur greinilega eitthvað gerst - og ekki vil ég að það gerist hjá mínu barni. Áslaug og Helgi komu yfir í gær í kostningavöku og fékk ég lit yfir gráu hárin í leiðinni. Daman ákvað að sýna sínar bestustu gestahliðar, eða þannig.... hún sofnaði kl. 23 eftir að ég og Einsi höfðum verið til skiptis uppi hjá henni að reyna að svæfa hana - ég gafst upp á endanum og tók hana niður... rosaleg sem hún fílaði sig vel í Slaugufangi og fékk alla þá athygli sem hana vantaði. Svo hér sit ég... ógurlega þreytt og ósofin - hef ekki fengið mér heilan næturblund síðan ég veit ekki hvenær, því ég var löngu hætt að sofa áður en daman kom í heiminn vegna fótaóeyrðar og almennra flóðhestasyndróma :-/ Við eigum pantaðan tíma hjá svefnráðgjafa þann 17. þessa mánaðar og verður fínt að fá einhvern pro til að kíkja á málin.

Ég klára námskeiðið á föstudaginn og hlakka ég svolítið til að fá quality time aftur í mitt líf - því það er ekkert auðvelt að klípa daginn svona í sundur, bæði Einsi að redda málum með því að koma heim og vinna svo langt fram á kvöld. Svo er Alli minn búinn að vera svo óguelga veikur síðan á sunnudag - í kvöld var hann með yfir 40 stiga hita og leið svo ömurlega að það hálfa væri hellingur... Greyið... Þannig að það er ástand á okkur... :-/

Sofa? Hver þarf að sofa fyrr en hann er kominn á Grund?

Comments:
Þetta er kannski bara eitthvað með aldurinn? Friðrik er búinn að vera mjög mikið að vakna á kvöldin og nóttunni undanfarið og hefur verið mjög óvær. Núna er hann svo með kvef og hósta sem bætir ekki úr skák.

Ég hef svolítið á tilfinningunni að þetta sé vegna þess að hann þarf að velta sér á milli hliða í svefni en kann það ekki alveg ennþá, þannig að hann vaknar við það. Mig minnir að Gyða hafi líka verið svona á tímabili en svo lagaðist þetta bara allt í einu þegar hreyfiþroskinn var orðinn meiri.

Við Árni skiptumst yfirleitt á en hann tekur flestar nætur núna af því að ég er að reyna að venja Friðrik af því að fá brjóst á nóttunni. En menn eru frekar úldnir hérna megin líka. ;-)
 
Skrifa ummæli