Tunglsýki Siggudísar

 

Bloggarar :

    Lilja & co.
    Halla krútt!
    Spunkhildar snilldin
    Þórunn Gréta
    Krumminn:-)
    Kynlegi Kvisturinn
    Ingunn
    Lilja lipurtá
    Bjarni og Elva
    Þráinn Sláinn
    Vibba
    Ásta Yfirnorn
    Gerður
    Siggi Huldar
    Syss
    Die Skelfir
    Svandís
    Skotta
    Heida The Beib
    Ási
    Ari bró
    Sigga Lára
    Gunnella glímudrottning
    Kollý
    Varrius
    Naflaló
    Nafna min
    Skaldid

Skemmtilegir krakkagormar

    R.E.M.
    G.S.M.
    Karitas Kjartansdóttir
    Guðlaug Nóa

Myndir

     Myndir
     Fleiri myndir
     Enn fleiri myndir
     Enn emm fleiri myndir
     Vetur 2007
     Eldgamalt
     Vetur 2008
     Dóttirin fallega
     Mars
     Marokkó
     Apríl & maí
     Sumar 2008
     Sumar 2008 Part Deux
     September 2008
     Október 2008
     November & des 2008

Hreyfimyndir

     Við á Youtube
  

     

Fyrri færslur:


     

    

 


mánudagur, nóvember 30

Halló Hafnarfjörður! 

Já, eins og systir kær benti réttilega á þá er nú aldeilis langt síðan mar átti smá stund á þessu bloggi og týmdi orðum á intertúbunni - kenni Fésbókinni að hluta til um ástandið ;)

Ég er komin með vinnu - júhú! Fékk 70% starf hjá fyrirtæki sem heitir Forever Living og selur Aloe Vera safann sem margur er að taka sér til heilsubótar... fer örugglega að bögga ykkur með staðreyndum um heilsugeirann og lofsama þessar vörur eins og engin sé morgundagurinn. Við erum svo heppin að ég þurfti ekkert að skola til vistunartímanum hjá Gullu Nóu svo hún heldur bara áfram að skemmta sér með vinum sínum á leikskólanum frá 9-16 og skemmtir sér heldur betur vel! Það er aldrei neitt mál að fara með hana en hún er samt ósköp glöð þegar sú gamla kemur að ná í hana :)

Við erum búin að baka eina sort og svo var laufabrauðið steikt um síðustu helgi í faðmi stórfjölskyldunnar minnar - rosalega gaman að hitta allt fólkið okkar, það eru svo mörg börn og svo skemmtimtilegt fólk í mínu liði ;)

Annars er lítið að frétta, þannig séð - eitt dram að rata í blöðin bráðlega og kem ég til með að skrifa dálítið um það... en ekki fyrr en sá tími kemur eins og ein ljóshærð sagði hérna í denn ;-/

Gulla Nóa er þvílíkt að digga þessi jól og jólasveinana og hrífur okkur með í spenningnum - ég get ekki beðið eftir því að hún fari með skóinn sinn út í glugga, ég fer pottþétt núna með hana að sjá þessa blessuðu jólalest skrölta niður Laugaveginn og bara allskonar skemmtilegt framundan. Sú gamla (mamma) verður hjá okkur um jólin og erum við að spá í hvort mar eigi að fá sér lifandi tré eða splæsa í eitt óekta... hver er reynsla ykkar?

Já, daman er einnig að fá 2ja ára jaxlana sína - farin að tala og syngja heilmikið... ef hún er að dunda sér eitthvað og leika þá syngur hún viðstöðulaust - gaman að því ;)

Þangað til næst! (sem verður vonandi á þessu ári)

Comments:
Segðu mér endilega meira um þessa jólalest. Hvar, hvenær, hvernig, hvers vegna?

Svandís
 
Þetta er bara þessi árlega JólaKókakóla lest sem brunar niður Laugaveginn - með miklum ljósagangi og látum. Börnum hefur oft fundist hún vera jafn skemmtileg og foreldrunum þykir þetta vera mikið markaðstrix hjá Vífilfelli - ætla að sjá hvorum megin línunnar ég er ;)
 
Skrifa ummæli