Kveiktu á kerti, fremur en kvarta yfir myrkrinu.
Já, ég stóð í stríði í nótt... mikið gekk á í Mávahlíðinni og endaði það allt saman vel, en ekki alveg á þann hátt sem ég hefði kosið. Egill (besti vinur Alla skralla) gisti hjá okkur í nótt og það var einhver sem spurði mig hvort ég myndi ekki sofa bara í stofunni og þeir í hjónarúminu... nei, nei, ég hélt nú ekki... þetta endaði nú samt þannig.. eða næstumþví. Strákarnir komu sér vel fyrir inni hjá Alla, á gólfinu í svefnpoka og voru að kjafta frameftir miðnætti. Á meðan var ég að horfa á Casino og drekka þetta indæla rauðvín... fann allt allt of mikið á mér fyrir vikið, en það er ekkert við því að gera;-( Svo er ég að fara að lúllast... leggst upp í rúm og er að spjalla við Ástu SEM BETUR FER því ég hef aldrei... aldrei.... haldiði ekki að helvítis djöfuls tussu-könguló hafi ekki verið á veggnum fyrir ofan rúmið. Taugaáfallið maður sem ég fékk... Ásta hélt að ég hefði verið að reykja einhvern fjandan eða væri á perunni.. fékk móðursýkiskast og fór næstum að grenja... nú fer ég að gera eitthvað í þessari fóbíu... Ég henti í hana, eftir mikla sálfræðilega uppbyggingu, sunnudagsmogganum (ólesnum, nota bene) og hún hrundi eitthvert í rúmteppið/sængurnar/koddana... ég gat ekki vakið drengina til að fjarlægja helvítið, svaf frekar í sófanum inni í stofu! Hélt að ég myndi kafna... Djöfullinn að vera með svona óþolandi veikleika! Ekki nóg með að maður sé kona og þar af leiðandi fokkt opp eníveis ;-/ Veit um eina vinkonu mín sem er vatnshrædd og Alli fékk þessa fóbíu frá mér í sængurgjöf.... annars veit ég ekki um fleiri sem eru eitthvað svona ,,klikkaðir", eða eiga við svona fóbíur að stríða. Kannski er fólk ekkert að flíka þessu? Eníves... nú skal farið í jarðsetningu á þessu ógeði sem bíður oss í herberginu mínu... hún fer í ruslið og því verður hent út, strax!