Og enn meiri tiltekt....
Haldiði ekki bara að
yfirnorn vor sé ekki barasta byrjuð að blogga undir eigin nafni og frá sama hjarta :-) Til lukku með mín kæra... hlakka til að fylgjast með öllum sköndulunum sem gerast í kjallara yðar og á fleiri stöðum.
Þar sem þetta kommentkerfi mitt, eins blessað og það er, er handónýtt auglýsi ég hér með eftir uppástungum um ný. Veit að það er til ógrynni af þessu drasli...
Það lýsist hér með yfir að það hafa aldrei aldrei komið jafnmargir inn á síðuna mína og í dag... skyldi nýja linkadraslið hafa einhver úrslitaáhrif þar um? Nota því tækifærið til að auglýsa eftir almennilegum bankaræningjum... af hverju í andskotanum tekst þetta aldrei?
Ragga er á leiðinni í bæinn og ég frétti það að ég held víst partý annaðkvöld... þeir sem vilja mæta gjöri slíkt... veit samt ekkert hvort ég verði heima. Síðasti maður út er vinsamlegast beðinn um að slökkva ljósinn og læsa á eftir sér :-)
Nú er bara að hysja upp um sig teygjusokkana, setja upp grímuna, bruna út í ríki, byrgja sig upp, skrúra, skrúbba, bóna... passaðu þig Jóna... það er víst kominn föstudagur!!! Jibbíjei :-)