Allir að taka þetta heimskulega próf... held að ég sé barasta nokkuð sátt við sjálfa mig....

You're Anarchy, State, and Utopia!
by Robert Nozick
If it were up to you, there would probably be no government at all.
But then you'd have to deal with there being no government, and nobody likes that. So
you've decided that hiring a few security guards is okay. Getting rid of that nasty
tax collector would sure be nice, though. He keeps getting in the way of you making
the money you so richly deserve! Everyone who believes in you happens to be fairly
well off.
Take the Book Quiz
at the Blue Pyramid.
Til lukku allar konur, smáar sem stórar, til lands og láðs...
Bíð með Pekingöndina í hálsinum eftir einhverju óvæntu sem á vonandi eftir að gerast í dag, í tilefni af því að ég er kona og þal á ég skilið að fá eina gjöf eða glaðninga á ári til að vegu upp þessa daga sem mar er á túr, önugur, þarf að mála sig, ganga um með júllur og ala af sér börn. Bakaði amerískar pönnukökur ofan í okkur í morgun og hellti upp á kaffi, bakaði bollur og þar með er mínum störfum lokið.. eða það vona ég amk. Veit samt að drengurinn minn er ekkert það rómantískasta í heimi, gott dæmi um það er valentímusardagurinn-dagur elskenda og bandarískrar væmni. Ég ákvað að gera eitthvað í tilefni dagsins, vildi ekki gleðja kaupmenn með þvði að eyða pjéningum í eitthvað asnalegt og tilhæfulaust eins og afskorin bóm (sem mér finsnt vera mesta peningaeyðsla í heimi). Sá í Vikunni hvernig mar getur sagt ,,ég elska þig" á 99 tungumáluim og skrifaði á Afrikaans (Suður Afríka):
Ek het jou lief á gulan miða og laumaði í skóinn á mínum mjög svo heittelskaða. Svo þegar hann var að drífa sig á leikæfingu stuttu seinna þá tók hann gula miðann upp úr skónum, orðin samankrumpaður af áreinslunni við að troða sér í skóinn, las og rétti mér með spurn í augum.
Hann-,,Hvað er þetta"?
Ég-,,Þetta?... þetta er eitthvað.... ég veit ekki" (rjóð í vöngum og sá að ég hafði gleymt að breyta skriftinni)
Hann-,,Jæja, best að drífa sig"
Ég-,,Já, farðu bara..."
Hann-,,Sjáumst á eftir :-)"
Ég-,,Já" (sár)
Ég hafði gert plan B því mig grunaði að þetta ætti eftir að gerast ... laumaði öðrum miða í símavasann hans sem á stóð álíka sætt á einhverju óskiljanlegu tungumáli. Beið svo með aðra Pekingönd (fullt af Pekingöndum á mínu heimili) í hálsinum eftir því að hann hringdi í mig á leikæfingunni og væri þá búinn að fatta þetta, amk spyrði mig hvað ætti að standa á þessum miða á mannamáli, fyrst þetta var nú skriftin mín. Engin símhringing kom og ég dældi bara allri minni ást á meðan á 10 ára gamalt fórnarlamb sem á líka stóran hluta í mínu hjarta. Seinna um kvöldið eftir að allir heimilsmenn voru komir heim, við uppvaskið og eftir góðan kvöldverð spurði ég órómantíska drenginn minn hvort hann hefði ekki funið eitthvað í vasanum sem síminn var:
Hann-,,Ha? Jú, einhvern gulan miða með einhverju rugli á"
Ég-,,Já, hvað stóð á honum?" Ofvæmni í augum
Hann-,,Ég skildi það ekki og henti honum bara"
Ég-,,Núnú.. það er bara svona" Ógeðslega sár og hann skildi ekkert í því.
Ég sagði honum frá þessari rómantík sem hann henti frá sér .... vona að hann noti daginn í dag til að vinna þetta upp....
Hún er skrítin tík, þessi rómantík...
Skemmtileg þessi kostning á
kynþokkafyllstu konu landsins á Rás tvö í gær. Við vinnufélagarnir tókum okkur, af sjálfsögðu, saman og kusum hana
Dröfn okkar sem okkar fulltrúa.. og hún kom inn sem fimmta kynþokkafyllsta kona landsins. Ég samdi smá lýsingu um hana í tölvupósti áður en ég sendi inn mitt atkvæði, hvernig kynþokkin og glæsimennskan læki af hverjum fingri hennar og var það lesið upp á Rúv.. vúúúúú... Það er gaman að vera til á föstudögum :-) Fékk líka að hringja í kærastann hennar Höllu Dóru og ormast aðeins í honum í tilefni afmælis hans ... og af sjálfsögðu þess að það er konudagurinn á morgun. Han keypti spaugið okkar og var að fara á flugleiði til að ná í gjafakort til Akureyrar, hótel og 4ra rétta kvöldverður innifalið. Það var gaman.
Annars er ég svo upptekin af því að vera sæt og vinsæl að ég hef ekkert komist í það að blogga undanfarið.. ég sé ekki fram á að það breytist neitt svo ég verð að sætta mig við að blogga svona uþb einu sinni í viku. Þegar líf manns snýst um þá ákvörðun hvort mar eigi að setja í suðu eða dralon, hvað eigi að vera í matinn oþh þá er lítill tími til annars.
...só vatt???
Lýtalækningaumræður tröllríða landanum um þessar mundir og sýnist sitt hverjum. Persónulga finnst mér þetta bara fínt, svo lengi sem fólk fer ekki yfir strikið... þ.e. Michael Jackson-strikið. Rut hefur minn fulla stuðning og er ég ósámmála þeim sem segja að hún sé að þessu til að fá einhverja athygli og blablablabla. Hún er bara kona sem er orðin þreytt, gerir sér grein fyrir þvi og vill gera eitthvað í málunum. Hún var ekki einungis að vinna í mallanum og skipta um sílíkon, hún ætlar/ætlaði líka að kíkja í jóka og drasl. Þessi kona hefur enga jaxla.. .gerið þið ykkur grein fyrir því? Má hún ekki njóta þeirra forréttinda að geta tuggið matinn sinn... þ.e. ekki eins og kanína? NEI, segja þessar uppskúfuðu kerlingar sem fá áræðanlega aldrei að ríða ... Æjí, svo finnst mér þessar kerlingar sem eru að kvarta og kveina yfir þessu vera upp til hópa svo forljótar... eins og margar kvennréttindakerlingar.... nenna ekki að hafa sig til, fara aldrei í brasilískt vax, kafloðnar og kiðfættar eins og kvæðið segir. Farið þið bara sjálfar til lýtalæknis... sjáið t.d. myndina af
þessari þingkonu sem tuðaði og tuðaði....Þegar ég var lítil og fram á unglingsár þá þjáðist ég af þeirri trú minni að eyrun á mér hafi verið útstæð og var ég aldrei með stutt hár vegna þess... ég kvaldist og fannst sem ég væri viðriðni á köflum. Ef ég hefði haft tækifæri til þá hefði ég nauðað í mömmu þangað til hún léti undan og skellt mér undir hnífinn. Í dag er ég ennþá með sítt hár, ég geri mér fulla grein fyrir því að ég er með sæt lítil eyru en ég er ekki með stutt hár... ég veit að þetta er rugl en þetta er rugl sem er brennt einhvernveginn inn í mann sjálfann. Ætli mar geti ekki fengið sig skráðan sem öryrkja ef þessi sjálfsögðu mannréttindi eru tekin af manni? Er mar ekki deyjandi kynstofn, ef mar er ekki með neina lokka neins staðar og ekkert tattú? Mér líður ágætlega eins og ég er .... sem hlýtur að þýða að ég sé svolítið sæt...
Þið þarna ljótu menn og konur, ef þið getið ekki litið í spegilinn á morgnanna án þess að kúgast skellið ykkur undir hnífinn.. ykkur líður miklu betur á eftir .. og hver veit... ykkur gæti farið að líða vel með ykkur sjálf?
...einn góður... :
Hver er munurinn á jésus og
mynd af jésus?
Þú þarft bara einn nagla til að hengja myndina upp!
Omg...
Við stjórnmálamenn dagsins í dag sem geta tuðað og tuðað um jafn ómerkilegt mál og þennan blessaða ríkisráðsfund út í eitt segi ég bara eitt; ,,gett óver it or get a rúm".. það er ekkert smá sem hægt er að tuða um jafn ómerkilegan hlut. Mér sem skattborgara er skítsama þótt Óli hafi verið í Bandaríkjunum með kerlingunni sinni... vona bara að þetta fár hafi ekki skemmt fyrir honum fríið... hefði verið slétt sama þótt ríkisstjórnin hefði farið í hópsex á þessum fundi... snertir mig ekki rassgat og er búin að fá mig fullsadda af þessari umræðu.. segi ég og tuða... hehehhe....
Erum ennþá í vandræðum með að koma dótinu hans Einsa fyrir. Nokkrir kassar, rúm og skenkur... tekur ekki nema um hálfan bílskúr.. Það borgar sig ekki að leigja undir þetta geymslupláss... bjallið ef þið hafið eitthvað pláss.. engin borgun í boði, nema matarboð, heimabakaðar hnallþórur og heiðurssæti í innflutningspartýi... :þ
Að venju kemur
Bjarni Guðmars með skemmtilegar hugrenningar... klapp fyrir honum :-)