sunnudagur, júní 27
Og það eru...
... komnar inn nýjar myndir ... þetta er allt að koma... tek fleiri myndir á morgun... ÞVÍ ÍBÚÐIN OKKAR ER AÐ VERÐA SVO FLOTT!!!!!
(0) comments
laugardagur, júní 26
Djíses....
... þetta er allt of stórt hús... veit ekki hvað við komum til með að fylla það með... nema ef vera skyldi af hamingju ... þetta er allt að koma, mikið búið að mála og Gummi Palli á fullu að parketleggja ... við erum að vonast til að geta flutt á sunnudaginn en mig barasta langar svo mikið að kíkja aðeins út annaðkvöld. Hef ekki sett á mig andlit í marga marga daga og ekki farið í almennileg föt í allt of langan tíma... er búin að týna minni innri ,,konu" og farin að finna harkalega fyrir mínum innri iðnaðarmanni... mínus pípulagningarskoran :-)
Hvað á mar svo að kjósa á morgun? Brjálæðinginn, Jólasveininn eða Grísinn?
(0) comments
föstudagur, júní 25
(1) comments
mánudagur, júní 21
Að lokum...
Því miður neyðist ég til að tilkynna öllum lesendum, þar sem ég er nýskipaður skiptastjóri yfir dánarbúi Sigríðar, að það verða ekki flæri færslur á þessari síður. Sigríður lést í gær þegar hún datt niður stiga og braut höfuðkúpu sína. Sonur hennar hefur það ágætt, enda umvafin ættingjum á þessari stundu og væsir ekki um hann. Þeir sem telja sig geta gert tilkall í eignir hennar eru beðnir um að hafa samband við mig í síma: 691-8123 eða koma skriflegum beiðnum á heimilisfang Sigríður, með undirskriftinni:,,Arfur-til mín?"
Samúðarkveðja,
Arnar Lúðvíksson Hdl.
(0) comments
laugardagur, júní 19
And so it begins...
Haldið ekki bara að við séum ekki barasta búin að fá afhenta íbúðina... omg... brutum niður einn vegg í dag og byrjuðum að mála.. því er ekki mikill tími til að blogga því ef mar á að segja alveg eins og er þá á mar að nýta allar frístundir til slökunar, átu og svefns.... Þeir sem vilja er velkomið að kíkja á okkur... innfl.partý auglýst síðar :þ
(0) comments
þriðjudagur, júní 15
HELP!!!
Ætla að verðlauna son minn fyrir frábærar prófniðurstöður og gefa honum síma.. á ekki einhver notaðan gsm sem hann/hún er hættur að nota og vill fá smá pjéning fyrir? Vinsaml. hafið samb. við mig í síma 865-0383...
(0) comments
mánudagur, júní 14
Afmæli, afmæli...
Elskulegur sambýlingur minn er 31 árs í dag, hann hefur glatt mig og mína með nærveru sinni í mörg mörg ár og veit ég ekki hvernig lífið væri án hans :-) Óska ég honum innilega til hamingju með daginn og vonast til að fá að njóta hans um ókomna framtíð. Af öðrum afmælisfréttum er það að frétta að Svandís er kominn með gjöf í hendurnar sem hún ætlar að opna á morgun og Ásta hélt upp á sitt afmæli á laugard.kv. með tilheyrandi blindafylleríi og látum. Við Spúnkhildur og makar vorum þar fremst í flokki og þar sem Leonsí var svona dýr þá tók ég bara einhver þann mest sexý dans sem sést hefur ... eða það fannst mér... ;þ Svo er bara tæp vika í afhendingu svo það var ágætt að rasa dulítið út núna því það verður ekkert djamm fyrr en innflutningspartý er haldið... nánar að því seinna...
(0) comments
miðvikudagur, júní 9
Hann á afmæli í dag...
.. Já, er ekki bara uppáhalds Öndin mín 70 ára í dag... rosaleg fagnaðarlæti í Kringlunni um helgina og ég þarf líklega að vinna... þrátt fyrir að hafa ekki ætlað að gera það. Ásta Kristín er að halda upp á afmælið sitt í Nauthólsvík á laugardagskvöldið og óska ég eftir skemmtilegum tillögum að gjöf. Vil eki gefa henni eitthvað standard... var að spá í meira happening... Leoncie tekur 45.000,- kall fyrir að mæta á svæðið, hvort sem hún flaggar brjóstum eður ei og finnst mér það vera fulldýr brandari. Finn ekki númerið hjá Geir Ólafs og Herbert er einum of lummó til að hægt sé að hlægja að honum.... Einhverjar uppástungur?
(0) comments
þriðjudagur, júní 8
Viðvörun!!!!
Vegna tafa kemur Andrés Önd ekki út í dag eins og hann á að gera, heldur er hann borinn út á morgun. Ekki hringja í okkur í vinnunni vegna þessa, álagið í dag verður klikkað... öll litlu börnin sem bíða í ofvæni... og álagið á okkur... arg, ég gæti lamið einhvern núna :-(
Annars allt í blómstrandi lukku, við erum að fara að borga Costa Del Sol ferðina okkar á eftir, aðeins 12 dagar í að við fáum afhent og ég er ekki einu sinni búin að redda mér kössum... Alex Skúli kominn til okkar og svakalegt stuð :-)
(0) comments
þriðjudagur, júní 1
Weyj!!!! Wí sörvæved meyj... :-)
Ekki leiðinlegt það... barasta kominn júní.. og það þýðir bara eitt... það er komið SUMAR!!! jibbí.... er lífið ekki unaðslegt, hver andardráttur er betri en sá á undan kom... hvert andartak fyllir mann lotningu.. og unaði... lífið er barasta ein samfelld raðfullnæging....
(0) comments
|
|