Spaug í boði Kristínar sem er með svo falleg augu :-)
Draumur konu:
Kona ein sat á bar ásamt vinkonum sínum eftir vinnudag, þegar hrikalega myndarlegur og rosalega sexy ungur maður gekk þar inn. Hann var svo eftirtektarverður að konan gat með engu móti hætt að stara á hann. Ungi maðurinn tók eftir athyglinni sem hann fékk frá konunni, gekk beint til hennar og sagði; Ég skal gera hvað sem ,HVAÐ SEM ER og hversu afbrigðilegt sem það er fyrir 2000 kr. með einu skilyrði. Orðlaus af undrun spurði konan hvað þetta skilyrði væri. Ungi maðurinn svaraði: Þú verður að segja mér hvað þú villt að ég geri í aðeins 3 orðum. Konan hugsaði tilboð hans um stund, byrjaði svo að telja peningana upp úr buddunni sinni og rétti unga manninum. Hún horfði djúpt í augu hans og hægt og rólega svaraði hún:
þrífðu húsið mitt...