Gleðileg jól

Við hér í Álakvíslinni óskum ykkur öllum Gleðilegra jóla.
Et, drekk og ver glöð :-)
Úfff... helgarnar geta verið erfiðar líka...
Búin að baka og baka um helgina með ágætum árangri, sumt tókst - annað ekki. Það er svona þegar maður fer að blanda saman einu uppskriftunum sem maður finnur að einhverju sem maður er búinn að bíta í sig að maður verði að baka og gefa öllum í jólagjöf... svo spilar líka inn í þegar maður klikkar á hitatiginu á ofninum, bökunartímanum ogégveitekkihvaðoghvað... En ég er búin og ætla að ganga frá hrærivélinni sem mamma lánaði mér og þrífa svo íbúðina með dyggri aðstoð hreyndýrsins míns - klára að versla það sem þarf að versla, senda það sem þarf að senda... og svo náttlega jólakortin... þau skrifast ekki af sjálfum sér né tölta út í pósthús...
Annars var vikan fín hjá okkur, Alex Skúli fór í stóra aðgerð á miðvikudaginn og er í strangri legu fram yfir helgi, svo það skemmist ekki allt en það var verið að flytja húð frá læri og á kálfa. Strákstrumpurinn er svo duglegur... það er örugglega ekkert auðvellt að vera 15 ára og meiga ekkert hreyfa sig og hafa varla fengið að gera það síðastliðnar 5 vikur.
Svo hjálpuðum við Hreyndýrinu að flytja á fimmtudaginn og læt ég eina mynd af henni fylgja með - ógó þreytt inn í stofu rétt áður en strákarnir komu til að bera út í bíl...

Einsi þurfti að skrúfa eitt borð í sundur áður en það var hægt að koma því út...:

Svo var Gummi Palli í verslunarleiðangri hjá okkur um helgina og fjárfesti í þessu dýrindis pool-borði:

Svo kíktum við í Bröns til Brynju í Mosó og hittum allt skemmtilega fólkið okkar:

Og að lokum smelli ég hér inn mynd af Gullu og prinsinum litla þegar þau kíktu á okkur um helgina - ógó mikið krútt:)
Stolið frá Vibbu bloggi...
Sé að maður er bara rétt búinn að fá smá nasasjón af heiminum... aðeins 5% . . .
create your own visited country map or check our
Venice travel guide
Einn tveir og Snú...!
Fórum í mæðraskoðun í dag og viti menn... er ekki bara barnið okkar búið að snúa sér - enda var móðirinn búin að kveinka sér óvenju þegar spörk og rass út í loft komst í h-mæli og bumban aflagaðist mikið. Þetta er bara fokkíng vont - sérstaklega þegar eggjastokkarnir og legið sjálft er notað sem sippuband og trampolín... Annars hef ég það ágætt, togast á milli fótaóeyrðar og get því ekki setið kjurr og samdráttarverkja svo ég verð að liggja... en þá get ég ekki andað því bumban hvílir á mér eins og mara... svo Einsi stakk upp á því að ég myndi bara standa á haus... ég veit ekki hvað maður á að gera... tíminn er svo ógurlega lengi að líða þegar maður hefur ekkert að gera (þ.e. liggur fyrir og reynir að hvílast) svo ég hef verið að baka eins og mófó, komnar 2 smákökutegundir og svo hið óendanlega góða Biscotti. Hætti að vinna eftir 2 vikur og þá fer maður bara að njóta jólanna og svo undirbúa komu lítils prins eða prinsessu... :-)
Annars er lítið að frétta, Alex Skúli fer í húðágræðsluaðgerð á miðvikudaginn, hann fékk að kíkja aðeins heim til sín um helgina og ber sig alveg ótrúlega vel - eins og honum er einum lagið.
Alli var að stíga upp úr veirusýkingu sem hann var með alla síðustu viku og er ég ógó glöð með að hún skyldi koma akkúrat núna, en ekki þegar jólin eru komin...
Fleira var það ekki... í bili... :-) ...hendi kannski inn mynd þegar við eigum 34 vikna ammli... svona leyfa fólki að sjá mig einu sinni búsna, krampý og með bjúg... :-)
Meiri smjörkúkurinn...

Gillzenegger, sem frægur er fyrir fallega húð og líkama en kannski minna um heilakonfekt setti grein inn á síðuna sína um einhverjar fjórar konur sem honum fannst vera of áberandi í fjölmiðlum og eitthvað blablabla, þeim er best að verða fyrir kynferðislegu ofbeldi og eitthvað... Bítli sagði frá þessari frétt í tíufréttum en um leið og fréttin fór í loftið tók hann fréttina út,
samkv. mbl. Þessi grein var víst lituð af mikilli kvenfyrirlitningu og eitthvað, hafði ekki tækifæri til að lesa hana sjálf en treysti Bítla fyllilega til að fara með rétt mál - en af hverju skyldi hann hafa tekið fréttina út...? Jú, mamma hans horfir á fréttirnar og hann vildi ekki að hún kæmist í þetta... hann er semsé ekki meiri maður orða sinna en svo að mamma hans hefur áhrif og ritstýrir síðunni úr fjarska. Persónulega finnst mér að ef maður tekur stórt upp í sig, sérstaklega opinberlega, þá verði maður að gera ráð fyrir þeim möguleika að þurfa að kyngja - en ekki gera eins og Gillz, kúka á sig af hræðslu við að mamma hans hringi reið í hann... hvað er hann líka eiginlega...? Fimm ára?