Tunglsýki Siggudísar

 

Bloggarar :

    Lilja & co.
    Halla krútt!
    Spunkhildar snilldin
    Þórunn Gréta
    Krumminn:-)
    Kynlegi Kvisturinn
    Ingunn
    Lilja lipurtá
    Bjarni og Elva
    Þráinn Sláinn
    Vibba
    Ásta Yfirnorn
    Gerður
    Siggi Huldar
    Syss
    Die Skelfir
    Svandís
    Skotta
    Heida The Beib
    Ási
    Ari bró
    Sigga Lára
    Gunnella glímudrottning
    Kollý
    Varrius
    Naflaló
    Nafna min
    Skaldid

Skemmtilegir krakkagormar

    R.E.M.
    G.S.M.
    Karitas Kjartansdóttir
    Guðlaug Nóa

Myndir

     Myndir
     Fleiri myndir
     Enn fleiri myndir
     Enn emm fleiri myndir
     Vetur 2007
     Eldgamalt
     Vetur 2008
     Dóttirin fallega
     Mars
     Marokkó
     Apríl & maí
     Sumar 2008
     Sumar 2008 Part Deux
     September 2008
     Október 2008
     November & des 2008

Hreyfimyndir

     Við á Youtube
  

     

Fyrri færslur:


     

    

 


föstudagur, janúar 4

Móðir vor veður slóðan fyrir aðra... 

Mamma hefur alltaf farið ótroðnar slóðir og engin treður á henni - hún stendur í stappi við TR þessa dagana því TR vill ekki taka þátt í kostnaði við handsnyrtingu sem er henni svo nauðsynleg. Kona sem er bara með eina hendi getur ekki (obvíöslý) séð um að snyrta á sér þessa einu hendi og neglurnar á mömmu eru í miklu messi eftir hrottalega lyfjagöf þegar hún var að berjast fyrir lífi sínu á spítalanum, í dáinu og alles. Mamma ætti einnig að fá fótsnyrtingu og neyðarhnapp en þetta er allt eitthvað bruðl að áliti TR - enda er mamma með tvær lappir og ætti að getað labbað á heilsugæsluna ef hún tekur upp á því að fá hjartastopp. Það er hreinlega ætlast til þess að mamma nagi á sér neglurnar til að halda þeim við - en þegar konan er með gervitennur og ónýtar neglur er það hreint ekkert svo auðvellt. Ég ætlaði að reyna að fá viðtal við Guðlaug heilbrigðisráðherra fyrir áramót en hafði ekki erindi sem erfiði, því það þarf bara smá lagabreytingu til að kippa þessu í liðinn. Núna eftir áramót fór þessi málaflokkur yfir til Jóhönnu Sig í Félagsmálaráðuneytinu og ætla ég að fá fund með henni til að spjalla um þetta mál, en málið er að það er bara hægt að panta viðtal á mánudögum kl. 08:30 og mér skilst að viðtalstíminn klárist um klukkan 08:31... svo ég er ekki bjartsýn á það að ná í hana en ég held áfram að reyna - enda orðin atvinnulaus og hef ,,ekkert að gera" ... hahhaa...

Í Fréttablaðinu í dag er frétt um þetta mál og svo kemur follow-up á morgun hjá þeim ásamt einhverju viðtali við mömmu. Reyndar hafði ein góð kona samband við blaðamanninn í dag eftir að hafa lesið fréttina og bauð mömmu fría handsnyrtingu en hún rekur svona bjútýskóla. Frábært að vita hvað fólk er góðhjartað og finnur mikið til með náunganum í dag, en mamma er ekki að þessu til að spara sér peninga - hún er að þessu til að fá viðurkenndan rétt sinn til að vera viðurkennd í kerfinu, hún er búin að greiða sína skatta og sinna sínum skyldum í gegnum tíðina... það er alveg ótrúlegt að horfa upp á hvað hún þarf að vaða eld og brennistein til að fá hitt og þetta í gegn, hluti sem hún á fullan rétt á og það er eins og hún sé eina einhenta manneskjan á landinu og að engin hafi misst útlim áður.

Kerfið einhvernveginn lærir aldrei af reynslunni...

P.s. Myndin í Fréttablaðinu er sko EKKI af hendinni á mömmu - hún lítur ekki svona vel út (mamma er mas bara núna með 4 neglur því hún missti nöglina á þumalputtanum fyrir stuttu við það að reka hana í, svo það er alveg dagljóst að gelneglur eru algjört möst fyrir hana).

Comments:
Gleymdi að taka fram að mér líst ljómandi vel á að tala við Jóhönnu ráðherra, enda er hún mikill skörungur, réttsýn og góðvinur okkar litla mannsins :-)
 
Gott hjá mömmu þinni að vekja athygli á þessu, ótrúlegur tvískinningur í gangi í þessu tryggingakerfi....Ég þurfti að koma árlega með staðfestingu á puttaleysi til að fá tryggingastyrk(hætti því eftir 3 ár fannst þetta svo fíflalegt)þeir héldu líklega að þeir yxu á aftur greyin;-) Vona að Jóhanna taki á þessu máli,- hún þarf reyndar að skera upp allt kerfið og ef einhverjum er treystandi til þess er það frú Jóhönnu. Knús og kram í bæinn þinn, Halla.
 
Ég sá þetta í Fréttablaðinu en vissi ekki að þetta væri mamma þín. Ég ætlaði einmitt að skrifa færslu um þetta því þegar ég var að vinna á elliheimili var karl sem vildi hafa neglurnar langar því hann átti þá svo miklu auðveldara með að klæða sig og gera ýmislegt annað hjálparlaust. Það er til skammar að svona sjálfsögð þjónusta sé ekki niðurgreidd.
 
Skrifa ummæli