Af slagsmálahundi...
Við hjónaleysin ákváðum að kíkja yfir á Taco Bell í gærkvöldi og fá okkur smá snarl og tókum lilluna með í kerru. Hittum Magga nágranna fyrir utan hús og stóðum við hliðina á bílnum okkar og vorum eitthvað að spjalla við hann. Eins og margur Reykvíkingurinn tók eftir í gær þá var afar þungbúið og búið að vera mígandi rigning allan daginn svo pollarnir á götunni voru margir ansi vígalegir. Skiptir engum togum en það kemur bíll æðandi til okkar á margföldum hámargshraða og ég sé að hann er ekkert að fara upp úr hjólförunum svo pollarnir gusast upp í kringum bílinn, ég byrja að veifa og vonast til að maðurinn keyri ekki svona hratt að okkur, en neinei - hann svoleiðis stakkst í poll og öll gusan yfir hana GulluNóu okkar! Ekki hægði þessi blessaði ökumaður á sér heldur hélt sína leið, þrátt yfir að ég stæði veifandi öllum skönkum og orðin heldur ill á brún... ég (af sjálfsögðu) tók á rás á eftir þessum bíl og ætlaði ökumaðurinn ekki að stoppa við þá sjón! Sem betur fer þá mætti hann öðrum bíl svo hann varð að stoppa og ég náði þar með að hlaupa hann uppi. Ég var orðin svo geðveik og brjáluð af reiði, hamraði svoleiðis í rúðuna og ekki ætlaði 17 ára ökumannsauminginn að rúlla hana niður (örugglega vegna hræðslu- hann hefur örugglega verið búinn að nett hrauna í fínu naríurnar sínar) svo ég reif upp hurðina hjá honum og öskraði svoleiðis af lífs og sálar kröftum hvort hann væri gjörsamlega geðveikur og hvað hann hefði gert sjö mánaða gömlu barni mínu með þessum fokkans hraðakstri. Hann skellti hurðinni all snarlega aftur og opnaði litla rifu á glugganum...
hvað er eiginlega að þér - spurði hann... hvað er að mér - öskraði ég á móti... það er 30 km hámarkshraði hérna og það er góð ástæða fyrir hinum -
ég var ekkert að keyra hratt - ég var á mesta lagi 35 km hraða! hálf gargaði þessi aumingi á mig! Hvað er eiginlega að þér - öskraði ég (og ég er að meina að ég öskraði af öllum kröftum) þú átt ekkert að keyra svona hratt hérna!
Kvakvakva.. hvernig veist þú að ég var að keyra svona hratt? ertu með geisla í augunum? og þegar þarna var komið gekk ég frá bílnum, snéri mér við og gaf honum fokk merki með báðum höndum og gretti mig eins og mér væri alveg sama þótt það kæmu hrukkur eftir þessi viðskipti...
Ef ég rekst aftur á þennan djöfuls glanna hér í íbúðagötunni og hann er ennþá með þessa fokkans stæla þá lesið þið um það á forsíðu DV daginn eftir:
Sturluð húsmóðir (35) fjarlægð úr Ártúnsholtinu
- fórnarlamb segist ekki hafa séð hana koma
Nágrannar staðfesta að konan hefur áður sýnt af sér ofbeldishneigð vegna umferðar í götunni