Draumurinn frumsyndur i dag :-)
Fænallý... eftir vel heppnaða generalprufu í gær er barasta komið að því.
Draumurinn rætist í kvöld og veðurguðirnir virðast ætla að vera okkur hliðhollir, enda finnst mér það bara vera fer því það rigndi og rigndi á æfingum í vikunni. Leikarar virðast þó ekki vera mikið kvefaðir og laumst til að stinga sér í flíspeysur á milli atriða og súpa á heitu kakói. Það eru allar líkur á að það verði uppselt en við ráðum ekki við fleiri áhorfendur en um 120 vegna umhverfisaðstæðna, ef mikil ásókn verður er aukasýning á mánudag og er það bara ágætt. Maður er orðin svo samdauna þessu leikriti og allir fyndnu punktarnir eru ekki lengur fyndnir, heldur eru klaufamistök fyndin og bíður maður spenntur eftir þeim... en það verður líklega ekkert mikið svoleiðis í kveld. Alli kom á prufuna í gær og skemmti sér konunglega, sem mér fannst fínt því það þýðir að þetta stykki er að virka fyrir fólk á aldrinum 5-500 ára... hann tók nokkur atriði fyrir mig á leiðinni heim og greinilega hafði tregafullur dauðdagi Þispu mikil áhrif á hann og lék hann það fyrir mig aftur og aftur og aftur og aftur....
Myndir eru komnar, tók nokkrar í gær og þið sem eru stödd í fjarlægum landshlutum eða löndum verðið bara að fylgjast með úr fjarlægð:-/
Tjútjú...