Tunglsýki Siggudísar

 

Bloggarar :

    Lilja & co.
    Halla krútt!
    Spunkhildar snilldin
    Þórunn Gréta
    Krumminn:-)
    Kynlegi Kvisturinn
    Ingunn
    Lilja lipurtá
    Bjarni og Elva
    Þráinn Sláinn
    Vibba
    Ásta Yfirnorn
    Gerður
    Siggi Huldar
    Syss
    Die Skelfir
    Svandís
    Skotta
    Heida The Beib
    Ási
    Ari bró
    Sigga Lára
    Gunnella glímudrottning
    Kollý
    Varrius
    Naflaló
    Nafna min
    Skaldid

Skemmtilegir krakkagormar

    R.E.M.
    G.S.M.
    Karitas Kjartansdóttir
    Guðlaug Nóa

Myndir

     Myndir
     Fleiri myndir
     Enn fleiri myndir
     Enn emm fleiri myndir
     Vetur 2007
     Eldgamalt
     Vetur 2008
     Dóttirin fallega
     Mars
     Marokkó
     Apríl & maí
     Sumar 2008
     Sumar 2008 Part Deux
     September 2008
     Október 2008
     November & des 2008

Hreyfimyndir

     Við á Youtube
  

     

Fyrri færslur:


     

    

 


miðvikudagur, október 1

Þeir ætla að reyna að selja Landssíman aftur, afnema eignaskatt og skila 6,4 milljörðum í tekjuafgang á næsta ári. Gúd lökk... held að það grist ekki, því miður. Er engin sérfræður, tók Þjó 103 á síðasta ári og er búin að gleyma hvað verg landsframleiðsla þýðir. Bara svo lengi sem þetta skili sér inn á debetkortareikninginn minn... hef samt litla trú á því... því er einhvernveginn þannig háttað að ef maður er ríkur þá er maður samt ekkert ríkari. Ef maður er blankur verslar maður bara í Bónus... ekkert mál... þeir meiga þrátta, rífast og ganga í skrokk hver á öðrum, sama er mér... þótt það hefði verið gaman að sjá það... Geir H. Haarde að slást við Össur, það væri skemmtileg sjón, eða ekki... Hvað með Kolbúnu kynþokkalausustu konu landsins og Katrínu konuna hans Kristjáns Ara? Uppáhalds slagsmálaparið mitt er þó Dorrit og Ástríður Thorarensen... hún er með svo rosaleg gleraugu... ætti að borga fasteignaskatt af þeim, eða fara í umhverfismat.

Bara til að leiðrétta þær kjaftasögur sem eru í gangi (eða þær sem ég heyri áræðanlega ekki af):
Nei, er ekki að fara að gifta mig - er ekki einu sinni í þjóðkirkjunni og hef litla trú á svoleiðis... þótt mig langi helvítið mikið í veisluna.
Nei, er ekki ólétt - hef ekki trú á að barn númer tvö skemmi ekki fullkominn vöxt minn :-)
Nei, er ekki að fara í meðferð - þótt ekki veitti af, en ég lifi í afneitun eins og margur Íslendingurinn
Nei, er ekki að fara í forsetaframboð - er ekki innundir á réttum stöðum og á ekki nægilega mikla pjéninga
Nei, er ekki að blogga frá Kvennaathvarfinu - fyrr myndi ég dauð liggja en að leita þangað

.. hefði ekki 8 að minnast á þetta...

Comments: Skrifa ummæli