Tunglsýki Siggudísar

 

Bloggarar :

    Lilja & co.
    Halla krútt!
    Spunkhildar snilldin
    Þórunn Gréta
    Krumminn:-)
    Kynlegi Kvisturinn
    Ingunn
    Lilja lipurtá
    Bjarni og Elva
    Þráinn Sláinn
    Vibba
    Ásta Yfirnorn
    Gerður
    Siggi Huldar
    Syss
    Die Skelfir
    Svandís
    Skotta
    Heida The Beib
    Ási
    Ari bró
    Sigga Lára
    Gunnella glímudrottning
    Kollý
    Varrius
    Naflaló
    Nafna min
    Skaldid

Skemmtilegir krakkagormar

    R.E.M.
    G.S.M.
    Karitas Kjartansdóttir
    Guðlaug Nóa

Myndir

     Myndir
     Fleiri myndir
     Enn fleiri myndir
     Enn emm fleiri myndir
     Vetur 2007
     Eldgamalt
     Vetur 2008
     Dóttirin fallega
     Mars
     Marokkó
     Apríl & maí
     Sumar 2008
     Sumar 2008 Part Deux
     September 2008
     Október 2008
     November & des 2008

Hreyfimyndir

     Við á Youtube
  

     

Fyrri færslur:


     

    

 


þriðjudagur, október 7

Jájá, Sigga Víðis, hin frábæra Sigga Víðis barasta farin að blogga. Mikið hlakka ég til að fylgjast með ævintýrum hennar í úglöndum, hún er svo skemmtilegur penni :-) Hún er semsé fyrrverandi kærastan hans Palla bróðursonar míns (hljómar eins og ég sé áttræð, bött æm nott!) og þegar þau voru að þvælast um heimin fyrir ári síðan, eða tveimur, þá sendi hún reglulega pistla sem voru skemmtilegri en pistlarnir hans spanjóla-gæja, sem leggur alltaf til í lok hvers pistils að jógúrt eigi að vera kölluð eitthvað annað en það er kallað.

Það er lægð að ganga yfir landið og þá gerir maður ekki rassgat, er búin að ætla að taka til í svefnherberginu í marga marga daga en það er alltaf lægð að gagna yfir. Gott að kenna veðrinu um eigin aumingjaskap og leti. Gott dæmi: Ég hengdi þvott út á snúrur á föstudaginn og á laugardaginn gekk á með skúrum og vondu veðri, sunnudagurinn var lítið skárri en gærdagurinn var ok... svo ég náði í þvottinn í morgun, í rauða morgunátfittinu og þá var hann passlega þurr. Það fer allt í hægagang og maður spyr sig hvert þetta ryk og ógeð fari eiginlega? Ekki neitt... það er nefnilega gallinn, það fer ekki neitt og því liggur ekkert á að taka það í burtu :-/

Er að berjast við að lesa Líflækninn, það gengur ekkert sérlega vel, því mér finnst hún svo leiðinleg... hún er samt hátíð miðað við Stellu Blomkvist... hvað er það eiginlega? Byrjaði að lesa Morðið í alþingishúsinu... guð minn góður! Gafst upp í miðri sögu og skilaði bókinni inn... það var hreinlega ekkert gott við þetta helvíti... Jú, kannski er hægt að rífa blaðsíðurnar úr og senda til einhvers lands í eldsneytisnauð :-( Stundum verður maður bara reiður út í þessa karla sem vinna með manni að láta sér detta í hug að bjóða almenningi upp á þetta... grunar að höfundurinn sé einn af þeim, það eiginlega hlýtur bara að vera.

Við gerðum tilraun á föstudaginn, eða Alex Skúli og Alli Skralli... kanilskeið skyldi upp í munn og ofan í maga. Ég sagði þeim frá því að Hrannar Björn Árnason nokkur hefði tekið heila skeið í vinnunni og vildu þeir ormar ekki vera minni menn. Í ruslapoka fóru þeir og undirbúningurinn mikill, en ekkert gekk... þeir hóstuðu upp fagurlega sköpuðu kanilskýi en þeim varð ekki meint af... sem betur fer :-) Hrannar hafði þennan viðbjóð upp í sér í einhverjar 15 mín. (er mér sagt-sá þetta ekki sjálf) áður en hann náði þessu niður, vanlíðan hans varð einvher eftir það og talaði hann um að hann hefði þornað mikið upp. Augun og eitthvað... só dónt træ þiss at hóm:-/

Veikindi eru að tröllríða þessari þjóð, við erum einum starfsmanni færri þessa dagana og það er hundfúllt. Heiðdís greyið líður samt áræðanlega verr en okkur... með yfir 39 stiga hita. Bjössi er búinn að vera veikur í einhverjar vikur og ekki sér fyrir endan á því... sendi öllum veikum Íslendingum mínar bestu óskir með von um skjótan bata.

Comments: Skrifa ummæli