Ég á ammæli í dag....
..ég á ammæli í dag...
Já, svona líður tíminn... var að fara yfir kortin sem mér bárust fyrir fyriy ári síðan og það var ekkert smá sætt.... fullt af ólíklegasta fólki sem kom og gladdi mitt smáða hjarta með allskonar... sérstaklega bara tilveru sinni og næveru.... margt er búið að gerast síðan ... ég er búin að útskrifast sem stúdent, LOKSINS, landa drengnum sem gerir líf mitt svo skemmtilegt á hverjum degi, búin að kynnast fullt af skemmtilegu fólki, búin að prufa allskonar hluti sem ég hélt að ég myndi aldrei gera og lífið er bara rétt að byrja :-) Er þó að glýma við pestarfjanda þessa dagana sem lýsir sér í endurteknum faðmlögum við minn ekta vin, Hr. Gustavsberg, ótrúleg ógleði og mygla fyrir allskonar lyktum... sérstaklega matarlyktum. Við vorum með smá matarboð í gær, elduðum þríréttað með Helga og Slaugu.. það var fínt... sérstaklega eftir að ég var búin að skila matnum í klósettið ... mér finnst ekkert geðslegt að gubba, eins og flestum, þannig að ég gubbaði miklu meir, af því að þetta var svo ógeðslegt, vítahringur djöfulsins... Svo var reynt að drekka, til að halda uppi heiðri afmælisbarsins og gera e-ð úr þessu kvöldi... það gekk ekkert sérstaklega vel... við ákváðum að fara aðeins niðrí bæ og þar lá fnykurinn af Hlöllabátum yfir öllu svo ég gafst upp og dró drenginn minn heim. Svona endaði það. Berglind var að halda upp á 30 ára afmælið sitt þetta kvöld... fyrirgefðu Berglind mín, en við ætlum að kíka á þig í dag með pakka... þá gefst manni líka tækifæri á að sjá
Rósu litlu gússý gúss....