Afsakið... afsakið...
... án afláts og sáðlats. Ég hef ekki gert updeit á stöðu mála síðan ég skildi við lýðin í fúlu skapi... úfffúfffúfffúfff... ekki gott sérstaklega þar sem maður er svo sjaldan í fúlu skapi... Hvað um það. Mamma er bara hin hressasta og nú er barasta kominn tími til að hún fái heimsóknir til að gefa henni vítamínsprautur (andlegar sprautur, takk fyrir) og ýta enn frekar á eftir bata hennar. Hún er ennþá í öndunarvél og er ekki komin með talventil. Þegar hann er ekki þá verður maður að eiga samskipti við hana í gegnum varalestur, bendingar og hægt er að hnipra á blað það sem maður skilur ekki. Annars fáránlegt hvað ég er farin að skilja hana... frekar glöð með það því hún hefur náttlega ekkert getað tjáð sig hingað til. Vorum mikið að tala um ,,slysið" í dag, þ.e. hvað kom fyrir og eitthvað... held hún muni ekkert eða lítið frá því... við ræðum þetta bara í rólegheitunum þegar röddin er komin :-) Og þegar röddin kemur þá kemur Kolli og þá er allt í höfn :-) Hún bað fyrir kveðju til allra, hún er þakklát fyrir alla þá sem hafa huxað hlýtt til hennar að undanförnu og ætlum við að gleðja starfsfólkið á sumardaginn fyrsta með einhverjum brauðtertum og eitthvað sem mamma vill færa þeim... veit að einhverjir drengir á Vöruafgreiðslunni á Höfn fyllast núna öfund og naga sig í handabakið yfir því að hafa ekki farið í hjúkkuna og unnið á gjörgæsludeildinni í Fossvogi :-) Öntil next time... adíjós :-)
Gleymdi svo aðalfréttinni... Svandís er komin með litla fegurðardís... Svanda, mamma sendir ykkur öllum knús og kossa og sömuleiðis við öll hér...
þaulengilifihipphipphúrra!!!! Við viljum myndir (sagt eins og ,,við viljum franskbrauð!)!!!