mmmm... nammi...

Við vinnufélagarnir fórum út að borða í gærkvöldi og var ákveðið að fara á Sjávarkjallarann. Er skemmst frá því að segja að maturinn var stórfenglegur og ekki skemmdi fyrir að umhverfið er alveg frábært, mjög flott allt saman, þjónustan frábær og stemmarinn almennt hinn skemmtilegasti. Hér erum við að sötra fordrykk og hér að neðan má sjá þegar eftirréttirnir voru bornir fram en þeir flæddu yfir borðið í orðsins fyllstu...:

Þau eru svo yndisleg og skemmtileg öll sömul :-)
Annars á Alex Skúli afmæli í dag og eru þeir feðgar í þessum orðum töluðum úti að versla afmælisgjöf, kökur og kransar hafa vinsamlegast verið afþakkaðir en vonandi næ ég að troða upp á hann eins og einni súkkulaðiköku eða jafnvel eplapæj... mmm... með ís jafnvel..? mmm... best að fara að hita ofninn... :-)