Tunglsýki Siggudísar

 

Bloggarar :

    Lilja & co.
    Halla krútt!
    Spunkhildar snilldin
    Þórunn Gréta
    Krumminn:-)
    Kynlegi Kvisturinn
    Ingunn
    Lilja lipurtá
    Bjarni og Elva
    Þráinn Sláinn
    Vibba
    Ásta Yfirnorn
    Gerður
    Siggi Huldar
    Syss
    Die Skelfir
    Svandís
    Skotta
    Heida The Beib
    Ási
    Ari bró
    Sigga Lára
    Gunnella glímudrottning
    Kollý
    Varrius
    Naflaló
    Nafna min
    Skaldid

Skemmtilegir krakkagormar

    R.E.M.
    G.S.M.
    Karitas Kjartansdóttir
    Guðlaug Nóa

Myndir

     Myndir
     Fleiri myndir
     Enn fleiri myndir
     Enn emm fleiri myndir
     Vetur 2007
     Eldgamalt
     Vetur 2008
     Dóttirin fallega
     Mars
     Marokkó
     Apríl & maí
     Sumar 2008
     Sumar 2008 Part Deux
     September 2008
     Október 2008
     November & des 2008

Hreyfimyndir

     Við á Youtube
  

     

Fyrri færslur:


     

    

 


þriðjudagur, október 16

Þörf áminning... 

Einn vinnufélagi minn er til hvílu borinn í dag og færði ekkja hans okkur þessa vísu sem mig langar til að deila með ykkur, enda er góð vísa aldrei of oft kveðin:

Í grendinni veit ég um vin sem ég á

í víðáttu stórborgarinnar.

En dagarnir líða mér óðfluga frá

og árin án vitundar minnar.




Og yfir til vinarins aldrei ég fer

enda í kappi við tímann.

Sjálfsagt þó veit að ég vinur hans er

því viðtöl við áttum í símann.



En yngri vorum við vinirnir þá

af vinnunni þreyttir við erum.

Hégómans takmarki hugðumst við ná

og hóflausan lífróður rérum.



Ég hringi á morgun ég hugsaði þá

svo hug min fái hann skilið.

En morgundagurinn endaði á

að ennþá jókst milli okkar bilið.



Dapurleg skilaboð dag einn ég fékk

að dáinn sé vinurinn kæri.

Ég óskaði þess er að gröf hans ég gekk

að í grendinni ennþá hann væri.




Sjálfur ef þú átt vin góðan í grennd

þá gleymdu ekki hvað sem á dynur,

að albesta sending af himnunum send

er sannur og einlægur vinur.

Comments: Skrifa ummæli