Tunglsýki Siggudísar

 

Bloggarar :

    Lilja & co.
    Halla krútt!
    Spunkhildar snilldin
    Þórunn Gréta
    Krumminn:-)
    Kynlegi Kvisturinn
    Ingunn
    Lilja lipurtá
    Bjarni og Elva
    Þráinn Sláinn
    Vibba
    Ásta Yfirnorn
    Gerður
    Siggi Huldar
    Syss
    Die Skelfir
    Svandís
    Skotta
    Heida The Beib
    Ási
    Ari bró
    Sigga Lára
    Gunnella glímudrottning
    Kollý
    Varrius
    Naflaló
    Nafna min
    Skaldid

Skemmtilegir krakkagormar

    R.E.M.
    G.S.M.
    Karitas Kjartansdóttir
    Guðlaug Nóa

Myndir

     Myndir
     Fleiri myndir
     Enn fleiri myndir
     Enn emm fleiri myndir
     Vetur 2007
     Eldgamalt
     Vetur 2008
     Dóttirin fallega
     Mars
     Marokkó
     Apríl & maí
     Sumar 2008
     Sumar 2008 Part Deux
     September 2008
     Október 2008
     November & des 2008

Hreyfimyndir

     Við á Youtube
  

     

Fyrri færslur:


     

    

 


þriðjudagur, október 23

Tannréttingar og annað basl... 

Jæja, mikið er orðið langt síðan síðast - þegar mar bloggar einu sinni í viku er eiginlega skylda að það sé mikið búið að gerast :-) ... nema hvað ég gleymi alltaf öllu steini léttara þessa mánuðina, sem er ekki sneddý þegar mar ætlaði helst að skrásetja hverja hreyfingu, ummál, viðrekstur og ég veit ekki hvað og hvað...

Við Bjössi, elskulegur barnsfaðir minn, fórum með Alla í viðtalstíma til tannréttingarkonunnar okkar í morgun. Við Alli vorum búin að fara nokkrar ferðir, taka röntgen, skoðun og taka mót og var þetta semsé niðurstaðan úr þeim pakka... við fengum kostnaðar og aðgerðaráætlun og merkilegt nokk.... við komum ekki til með að lepja dauðan úr skel á meðan á þessum réttingum stendur. Þar sem Alli þarf bara teina í neðri góm og ef allt stenst eins og það á að gera og tilviljanir eru okkur hliðhollar (sem og einn vaxtarsprettur til viðbótar hjá Alla) þá á þetta eftir að taka ekki nema um ár... og við fáum yfir 60% endurgreitt... og þegar maður þarf bara að leggja út fyrir helmingnum af eftirstöðvunum þá er þetta barasta frábært...! Mikið öfunda ég barnið af því að verða með fallegt bros og hefði ég gefið mikið til að Siggi tann á Höfn hefði ákveðið að skella mér í svona réttingu... sérstaklega á meðan þetta var frítt, mar!

Annars er Gulla dottin á tíma og ef hún svarar ekki í 3ju hringingu fær mar sjálfkrafa í magann og sér hana fyrir sér í forstofunni heima að rembast... ég vona að þetta fari að koma hjá henni, mér finnst það stytta mína meðgöngu svo mikið...

Annars eigum við 27 vikna afmæli á fimmtudaginn og ætla ég að skella inn Flóðhestamynd við það tækifæri... maður greinilega gleymir svolítið að taka myndir af sér þegar maður er í þessu ástandi... hvað skyldi Freud hafa sagt við því...?

Comments:
Trust me baby, ef að eitthvað fer að gerast verðuru látin vita ;) og ég skal vera með símann á mér við öll tækifæri svo drottningin fái ekki áfall :D
 
Skrifa ummæli