Tunglsýki Siggudísar

 

Bloggarar :

    Lilja & co.
    Halla krútt!
    Spunkhildar snilldin
    Þórunn Gréta
    Krumminn:-)
    Kynlegi Kvisturinn
    Ingunn
    Lilja lipurtá
    Bjarni og Elva
    Þráinn Sláinn
    Vibba
    Ásta Yfirnorn
    Gerður
    Siggi Huldar
    Syss
    Die Skelfir
    Svandís
    Skotta
    Heida The Beib
    Ási
    Ari bró
    Sigga Lára
    Gunnella glímudrottning
    Kollý
    Varrius
    Naflaló
    Nafna min
    Skaldid

Skemmtilegir krakkagormar

    R.E.M.
    G.S.M.
    Karitas Kjartansdóttir
    Guðlaug Nóa

Myndir

     Myndir
     Fleiri myndir
     Enn fleiri myndir
     Enn emm fleiri myndir
     Vetur 2007
     Eldgamalt
     Vetur 2008
     Dóttirin fallega
     Mars
     Marokkó
     Apríl & maí
     Sumar 2008
     Sumar 2008 Part Deux
     September 2008
     Október 2008
     November & des 2008

Hreyfimyndir

     Við á Youtube
  

     

Fyrri færslur:


     

    

 


fimmtudagur, október 2

Að standa sig ILLA í viðtölum... 

Nú er svo komið að ég er aðeins farin að huxa mér til hreyfings atvinnulega séð og hef verið að fara í einhver viðtöl, bæði í fyrirtæki sem og á ráðningarskrifstofur. Núna er ég samt ekki alveg til í að fara að vinna strax frá lilluni, svo ég hef bara verið að þreyfa fyrir mér, sjá hvaða launakröfur er hægt að setja fram og bara sýna mig og sjá aðra. Af sjálfsögðu dríf ég mig af stað ef rétta boðið býst en málið er bara að ég hef aldrei farið í atvinnuviðtal án þess að landa vinnuni, svo ég hef sett fram gífurlega háar kröfur launalega séð, enda er tíminn með Gullu Nóu í mínum huga afar dýrmætur :-) Núna fram á að þær verði kannski samþykktar af fyrirtæki sem er með soldið spennó starf handa mér... sé til hvort það komi ekki eitthvað í ljós í vikunni... spennó :-)

Annars er enn ein helgin að skella á og ætlar mamma að koma til okkar og vera í nokkra daga - ég er svona að gæla við þá hugmynd að daman verði farin að skríða þegar hún kemur, en samt vona ég eiginlega ekki - því þá þarf mar að byrja alla daga á að moppa alla íbúðina og það er hlutur sem mér finnst óumræðanlega leiðinlegur... :-/

Birgitta Haukdal með vinkonu sinni, Karítas Bláey :-)

Comments:
Sætar. Ekki er ég frá því að kærastinn þeirra hafi þekkt þær aftur. Allavega vildi hann ólmur fá að þreyfa svolítið á þessari mynd svo núna er heilmikið "klín" á skjánum mínum. :-/
 
Ég þekki fólk sem finnst ekkert leiðinlegt að moppa, þú veist af því gæskan ef þú færð geðtruflað atvinnutilboð...
 
Vil bara leiðrétta misskilninginn Sigga mín, BARNIÐ moppar - með sjálfu sér! Þú þrífur bara upp glerbrot og annað sem hún gæti meitt sig á.
 
Skrifa ummæli