In thickness sickness...
Það liggja svoleiðis allir hér á mínu heimili eins og hráviðri um allt... Einsi er búinn að vera með G&G (Gullfoss og Geysi) í nærri viku, Alli sömuleiðis og daman með hita, kvef og vott af Gullfossi... Ég aftur á móti stend pliktina og hleyp á milli kjúklinga með fötur, snýtubréf, bleyjur, mat, vökva... Er að fara að renna með Einsa upp á vakt því mér líst bara orðið ekkert á hann - fínt að missa nokkra lítra af vökva eftir jólin en fyrr má nú aldeilis vera!
Veikindi banka líka upp á á æðstu stöðum, en Geir og Rúna eru bæði með æxli - vonandi hefur þetta EKKI áhrif á mótmælendur - það er EKKI búið að boða til kostninga né hefur NOKKUR maður sagt af sér vegna þessa... þótt Geir hafi fengið þetta mein þá er það hans persónulega vandamál sem maður óskar honum of kors velfarnaðar í - en þar sem það má EKKI persónugera ástandið þá höldum við áfram á sömu braut - ekki satt?
Ætla að halda upp á afmælið mitt á morgun, fer á mótmælafund, listsýningu, út að borða og svo bara djammerý :-) Hlakka ekkert smá til að bregða mér úr þessum hjúkku- og mæðrarbúningi og yfir í eitthvað léttara :-)