Strunsað póstnúmera á milli...
Uppgefin á sál og líkama eftir daginn í dag og það var ekki einu sinni skóli! Dagurinn byrjaði á að syss bjargaði mér frá bifreiðsverkstæðinu sem ætlaði að 45 þúsund kílómetraskoða bílinn okkar, beint heim í bollukaffi, rjóma og búðingur - svo var arkað og náð í nýju þvottavélina okkar (sem er reyndar líka þurrkari - fengum hana á 83 þúsund kall (sýniseintak) og seldum þurrkarann svo þetta var ekki nema um 50 þúsund sem við borgum) - henni dröslað upp, með einni kaffipásu. Svo var beðið og beðið eftir að bíllinn yrði tilbúinn - um tvö bjalla ég til að vita stöðuna... hann verður tilbúinn um klukkan fimm! Ómæ - barnið verður að vera upppikkað fyrir klukkan fjögur, nöldra ég við stelpuna á verkstæðinu... hún ætlar að sjá hvað hún getur gert... beðið, feisbúkkað og þvottavélin tengd og græjuð á meðan. Jú, klukkan tíu mín yfir þrjú bjalla þau - bíllinn tilbúinn! Ég bara strax á www.bus.is og sé að ef ég næ næsta bus þá lendi ég í hálfs kílómetra fjarlægð frá verkstæðinu... svo ég hleyp þetta bara! Ekkert mál að taka eins og nokkur póstnúmer, einn vog, undirgöng, rigningu og rok... tók þetta á 25 mínútum - og er frekar stolt af, ef ég er spurð... sem ég er reyndar aldrei... hehe... já, og já... ég týmdi ekki að taka Taxa - frekar að anda að mér ferskri náttúru og hreyfa á mér rassgatið. Henst í loftstrókum að ná í barnið, en þar tjáir Hafdís mér að hún hafi sofið frekar illa og c pottþétt ennþá með í eyrunum... ég var alveg sammála því og þar sem læknavaktin ,,okkar" var að opna akkúrat kl. fjögur þá rauk ég með barnið í tjékk. Kom í kjós að allar grunsemdir voru á rökum reistar - og ekki nóg með það... hljóðhimnan á öðru eyranu var sprungin líka! Svo það var rokið út í apótek og á þessu augnabliki var ég akkúrat þreytta kjérlingin með spinnegal krakkann í apotekinu - barnið sem henti sér í gólfið, öskrandi og æpandi og mamman stendur vandræðaleg hjá og þykist ekkert kannast við krakkann... hún var svo gjörsamlega búin á því litla skinnið mitt - úfff... Svo rukum við bara heim og ég lofaði henni að hún mætti bara vera heima að leika og gera skemmtilegt þangað til hún færi að lúlla... fékk bara Alla minn til að passa hana meðan ég skaust eftir Einsa... Prufukeyrði þvottavélina ekkert fyrr en eftir fiskibollurnar og kom hún mjög vel undan skoðun. Á eftir að misþyrma henni svo á morgun að hún á eftir að óska sér að hafa lent í einhverju öðru póstnúmeri.
Við fórum í skemmtilegt roadtripp í gær, en þá bauð Einsi stelpunum sínum í sund í Keflavík. Þar er starfrækt Vatnaveröld, frábær staður til að fara með krakkana í sund og leika sér í innisundlaug... og manni verður aldrei kallt, eins og í Árbæjarlauginni. Svo bauð hann líka stelpunum sínum upp á hamborgara á Keili - það fannst okkur æðislegt og gaman að kíkja aðeins, örlítið út fyrir borgarmörkin. Endaði svo á að fá að þvo eina vél hjá Heyju minni og spjall fram eftir kvöldi - fjarri börnum, burum og karlmönnum... bara við stelpurnar tvær - langt síðan mar gerði það :-)
Annars er lítið að frétta - skóli á morgun og ferðalag um Reykjanesið um helgina... minnir mig á það... þarf víst að tala eitthvað í þeirri rútu og undirbúa mig :-)