Hrykalega...
... fer það ofboðslega í pirrurnar á mér hvað Sjálfstæðisflokkurinn er ofboðslega sár eftir að hafa verið hent úr ökumannssætinu á slökkvibílnum. Geir segir að Samfylkingin hafi verið blinduð af hatri á einum manni og ,,látið undan þrýstingi" almúgans - það er náttúrlega augljóst að Sjálfstæðisflokkurinn einn getur verið blindur á það hvernig lýðræðið virkar... það að ,,láta undan" almúganum er lýðræðið... það að hlusta á fólkið er lýðræðið... þegar 80% þjóðarinnar vill þig ekki þá verður þú bara að fara úr ökumannssætinu...
Það nýjasta er að það er ógó dularfullt og gefur illan fyrirboða hvað það tekur langan tíma að mynda nýja ríkisstjórn og kynna hana... já.. er nema von? Þegar sjálfstæðisflokkurinn hefur haft það þannig í gegnum sínar myndandir að taka bestu kökubitana og skilja mylsnuna eftir fyrir samstarfsflokkinn á einum eftirmiðdegi... hvet ykkur til að lesa hann Davíð Þór aftan á Fréttablaðinu í dag... segir margt sem margur er að huxa :-)
Hvað um það - við gáfum skít í kreppuna í gær og keyptum okkur ógó stórt sjónvarp í gær - heilar 42" og það ekki einu sinni Phylips... heldur Philips :-) Við ákváðum að láta bara vaða því perukostnaðurinn í myndvarpann er orðinn svo hrykalega mikill að það borgar sig að huxa fram í tímann og reikna dæmið til enda... nú verður maður bara heima að skemmta sér á næstunni, horfa frítt en ólöglega niðurhalið efni í stóra sjónvarpinu, með næstum frítt heimabrugg í hendi :-)
Daman litla virðist vera búin að ná sér (aftur og einu sinni enn) en ekki er óhætt að fara með hana út í dag svo við kúldrumst inni bara... einn daginn enn :-)
Góða helgi allir saman!