Uppáhaldslagið mitt um þessar mundir er lagið Beds are burning með Midnight Oil - áströlsk hljómsveit sem stendur með innfæddum Down under. Textinn fjallar um tilhneygingu okkar hvítu mannana að troða á öllu því sem við getum troðið, mergsjúa það sem okkur sýnist og sýna engum öðrum en okkur enga mannlega virðingu. Þetta hápólítíska lag varð til þegar áströlsk yfirvöld voru með neyðarflutninga á innfæddum þjóðflokki sem heitir Pintupi og voru á meðal þeirra síðustu sem ,,komu frá eyðimörkinni" - þeir voru semsé fluttir nauðugir og búa núna í einhverskonar landnemabyggð sem telur alveg 400 manns. The Oils eins og þeir eru kallaðir á meðal harðra aðdáenda, vöktu mikla athygli þegar þeir fluttu lagið á lokahátíð ´Olympíuleikana í Sidney árið 2000, á meðal áhorfenda var John Howard, forsætisráðherra en ríkistjórn hans þverneitaði að biðjast afsökunar á þessum aðgerðum sínum. Til að mótmæla því þá flutti The Oils lagið í bolum sem á stóð ,,Sorry" og varð ennþá frægari fyrir. Ég set hér myndskeið af þessum flutningi hér og vonast til að einhverjir getað dillað sér og glaðst yfir góðu lagi með góðum texta:
Í dag má vel útfæra textann á nýðingsháttum Dana á Grænlendingum, því maður veit ekki helminginn af því sem þeir hafa gert af sér þar - einnig meiga Icesave liðar taka þetta lag til sín, því við skuldum jú einhvern pening... ef einhver finnur veski á götunni má vel raula þetta lag - þetta er bara æðislegt lag og ég vildi að ég gæti látið spila það í jarðaförinni minni! ... það ætti já, kannski vel við? híhíhíhíhíhíhíhíh...
Hvað um það - núna í morgun bárust mér þær fréttir að Kófí Annar væri búinn að semja við The Oils og fá að brúka lagið, dúkka dulítið upp á textann, breyta smá og ætli að gefa út með fullt af frægu fólki og að þessu sinni er lagið tileinkað hnattrænni hlýnun jarðar - meðal þeirra sem ætla að koma að laginu er Bob Geldof, The Scorpions og.... DURAN DURAN!
Hlakka ekkert smá til að heyra - njótið helgarinnar, elskið hvert annað og knús á ykkur öll ;)
Heyrðu - bannerinn þinn er horfinn í eterinn vegna þess að síðan sem hann var vistaður á er ekki lengur til. Má vera að hann sé enn til einhvers staðar djúpt í gömlu tölvunni minni ef þig langar að fá hann aftur.
Hurru af því að þessi færsla er orðin tveggja mánaða gömul, og ég ligg heima í bakverkjum -sumsjé grumpy old vúmam má ég til með að benda þér á að forsætisráðherra 'Astrala hefur beðið frumbyggjana afsökunar las það á netinu fyrir viku-hálfum mánuði Knús í kotið -syss