Ásamt því að sækja um launahækkun eru íslenskar konur hvattar til að:
· Sofa yfir sig.
· Fara í sömu nærföt og í gær.
· Pissa á setuna - og útfyrir, ef tími vinnst til.
· Mála sig ekki - og alls ekki raka.
· Mæta of seint í vinnuna - sparka í stimpilklukkuna.
· Fara strax í kaffi - kvarta yfir því að það sé a) of kalt b) of
sterkt c) of svart.
· Prumpa.
· Reyna við undirmennina - eða bara klípa þá í tippið.
· Fara of snemma heim - biðja næturvörðinn að stimpla sig út.
· Flauta á alla karla í umferðinni og senda þeim fingurinn - eða
ulla.
· Gleyma að sækja börnin á leikskólann.
· Setjast fyrir framan sjónvarpið um leið og komið er heim.
· Fá sér bjór.
· Urra - jafnvel bíta - ef einhver spyr eftir kvöldmat.
· Ropa.
· Sofna yfir Idol.
· Fá sér bjór.
· Leggjast í öllum fötunum í rúmið og helst strá yfir það brauð- eða
kexmylsnu.
· Sofna áður en makinn nær að bursta tennurnar.
· Hrjóta.