Tunglsýki Siggudísar

 

Bloggarar :

    Lilja & co.
    Halla krútt!
    Spunkhildar snilldin
    Þórunn Gréta
    Krumminn:-)
    Kynlegi Kvisturinn
    Ingunn
    Lilja lipurtá
    Bjarni og Elva
    Þráinn Sláinn
    Vibba
    Ásta Yfirnorn
    Gerður
    Siggi Huldar
    Syss
    Die Skelfir
    Svandís
    Skotta
    Heida The Beib
    Ási
    Ari bró
    Sigga Lára
    Gunnella glímudrottning
    Kollý
    Varrius
    Naflaló
    Nafna min
    Skaldid

Skemmtilegir krakkagormar

    R.E.M.
    G.S.M.
    Karitas Kjartansdóttir
    Guðlaug Nóa

Myndir

     Myndir
     Fleiri myndir
     Enn fleiri myndir
     Enn emm fleiri myndir
     Vetur 2007
     Eldgamalt
     Vetur 2008
     Dóttirin fallega
     Mars
     Marokkó
     Apríl & maí
     Sumar 2008
     Sumar 2008 Part Deux
     September 2008
     Október 2008
     November & des 2008

Hreyfimyndir

     Við á Youtube
  

     

Fyrri færslur:


     

    

 


föstudagur, febrúar 1

Einverjir samdrættir... 

... hafa gert var við sig í morgun og hélt ég að þetta væri að byrja, bannaði Einsa að fara í vinnuna - bjuggum vel um okkur upp í rúmi... og ég steinsofnaði! Vaknaði 3 tímum seinna við þann draum að barnið var einn og hálfur meter þegar það loks kom út, svo lengi hafði bökunartíminn verið á því...

Veit svei mér þá ekki hvað ég á að gera, það eru engir verkir með þessum samdráttum svo ég er bara hress og kát, útsofin og langar bara til að kíkja í Kringluna á smá útsölulabb...!

Agalega verður maður samt glaður þegar líf manns hættir að snúast um einhverja útvíkkun, hagsæld og legvatn - þegar barnið verður komið og maður hættir að blogga um klofið á sér hérna inni og fer að hafa skoðun á hinum ýmsustu hlutum aftur :-)

Þessi Kompásþáttur á þriðjudaginn s.l. var t.d. sláandi... undarlegt hvað ríkið lærir aldrei af reynslunni og virðist vera misþroska eitthvað... eins er Guðmundur í Byrginu svo óforskammaður að það hálfa væri nóg. Minnir mig á það... einu sinni vorum við á árshátíð JB (þar sem ég er að vinna) og sátum við með forstjóranum, framkvæmdastóranum og fleira skemmtilegu fólki til borðs. Bæjarstjórinn í Kópavogi, Guðmudur Birgisson sat með sinni konu einnig við borðið og voru þau hin almennilegustu, engir stjörnustælar og voru bara næs. Nema hvað... Drottningin eins og hún er þegar hún er komin í glas, fær Alshæmer olræt og kallar kallinn alltaf Guðmund í Byrginu... haha.. held samt (vona) að hann hafi ekki heyrt til mín... :-)

Comments:
Iss, þú hættir bara að blogga um klofið á þér og ferð að blogga um brjóstin á þér í staðin.

Annars held ég að það hljóti að vera voða gott þegar þetta mallar svona áfram með smá útvíkkun og verkjalausum samdráttum. Líkaminn bara að gefa sér góðan tíma í að koma sér í gírinn. Vonandi koma verkirnir bara ekkert fyrr en alveg undir lokin.

Annars ferð þú örugglega létt með þetta :D
 
Talandi um klofið á sér. Ég er búin að vera með einhverjar þvílíkar magapínur í dag. Hélt ég væri með samúðarverki með þér, en fyrst þú ert ekki með neina þá hef ég kannski bara fengið þína?

Ætla allavega að reyna að senda þá bara til baka. Er alls ekki nógu vel sofin til að fara á fæðingardeildina fyrr en í fyrsta lagi á morgun.
 
Skrifa ummæli