Svo ég ætla ekki að hafa þau mörg, erum semsé komin á 700 Egs og ætlum að vera hér eitthvað, enda mikið að skoða og marga að hitta... henti inn nokkrum myndum
Við ætlum að fara í smá ródtripp og ferðast um landið bláa og fagra - ef einhver saknar okkar er honum bent á að það eru uppfærðar myndir í möppunni okkar og kannski kemur eitthvað steitment á ferðalagi voru :-)
Góða helgi!
Myndin tekin í dag þegar sumir voru í sundi sem eru hryllilega lík pabba sínum!
Glaða stelpan okkar er í feikna stuði þessa dagana enda er hún með báða foreldrana heima í athyglissýki :-) Við skruppum aðeins í bæinn í dag - en ákváðum svo að vera ekki lengi því við eigum jú eftir að fara þangað árlega næstu ár... Skruppum svo bara í sund og hér er einmitt klippa af því þegar GullaNóa okkar kafaði smá um daginn :-)
Við smáfjölskyldan fórum í smá Ródtripp í dag og ferðuðumst aðeins um suðurlandið - ætluðum í hellaskoðunarferð en það var búið að loka hellinum - væntanlega vegna jarðskjálfta. Svo við tókum bara upp Vegahandbókina og mikið agalega sé ég eftir þeirri fjárfestingu! Ég vissi sjaldan hvar við vorum stödd í bókinni - hvaða kort átti við né í hvaða átt við vorum að stefna... eins gott að maður hafði sólina til að miða við og vitneskjuna um að beygja til hægri við Grindavík - annars værum við örugglega ennþá á leiðinni... eitthvert :-)
Annars er lítið að frétta - fiskur í matinn, daman dafnar eins og rós í beði, húsfreyjan búin að taka smá lit í sólinni og karlinn brann í Bláa Lóninu um helgina... og já... hann varð 35 ára á laugardaginn :-)
Við ætlum að halda upp á sameiginlegt 70 ára afmælið okkar bara í haust þegar daman er alveg hætt á brjósti og farin að sofa heila nótt - þá ætla ég sko að dett'íða!
Daman hefur reyndar gert þetta áður, en ekki í laaangan tíma og að auki náðist það á filmu í þetta sinn - hún fór að vísu frá baki og yfir á maga tvisvar um helgina, en þetta á víst að gerast fyrst :-)
Hún er líka farin að færa hluti á milli handa og notar þumalputta og vísifingur óspart við að halda utan um hluti, tekur þannig utan um snuðið sitt - stingur því upp í munn - tekur út aftur - snýr við - sýgur smá plasthlutann af snuðinu og snýr svo réttu upp í sig - alger snilli!
Drifum okkur með GulluNóu í mælingu í morgun en það voru rúmar 6 vikur síðan síðast - daman orðin hvorki meira né minna en 6.735 grömm og 65,5 cm... hún hefur þyngst um 190 grömm og vaxið um 0,4 cm á viku, þrátt fyrir mikil uppköst oft á tíðum.
Annars er lítði að frétta, mamma fór í dag en hún er búin að vera hjá okkur síðan á þriðjudag - Einsi fer í frí í næstu viku og guð hvað ég hlakka til!
Annars bara lítið ... nýjar myndir komnar inn og mas nýtt albúm...
Helgin var alveg ótrúlega skemmtileg - eins og þær flestar og nú fer að líða að því að Einsi fari í fæðingarorlof og þá leggjum við land undir fót - bara þegar við nennum...
Annars ber þetta hæst í fréttum:
Karítas kom í heimsókn fyrir helgi Við fórum í heimsókn til Heiðu Kíktum í menningarferð niður á Höfn á Hátíð Hafsins og þetta var EKKI í matinn...! Báðir stóru bræðurnir voru hjá okkur um helgina, þótt þeir hafi verið agalega uppteknir af því að vinna, greyjin.... GullaNóa æfði sig sem endranær í að vera stór... Og þar sem þessi lyf eru ekki að gera rassgat fékk daman að borða í fyrsta sinn! Settum blóm á Minningaröldurnar, en pabbi og Bragi (sem fórst með honum) eru nýkomnir á steininn Og GullaNóa æfir sig að borða og borða... Pjakk! Hvað er hún að borða í þetta sinn? Eitthvað ÓGEÐ! (Rísgrautur með smá sveskjumauki)
Mamma kemur svo heim á morgun, rétt um það leyti sem við verðum í fyrsta tímanum okkar í ungbarnasundi! Jeminn hvað ég hlakka til... Karítas (hennar Ástu og Kjartans) verður líka í sama tíma og við... ógó spennó!