2009 verður ár tækifæranna!
Eða ég er bara búin að ákveða það, takk fyrir takk. GN er byrjuð í aðlögun hjá dagmömmu, enda komin tími til að barnið hitti önnur börn á regulear basis og læri að leika sér - hún verður hjá Hafdísi hans Bjössa en hún er einmitt dagmamma :-) Ég er ekki komin með neina vinnu og kannski svolítið glæfralegt að koma barninu frá sér í pössun þegar maður getur alveg eins verið heima að leika við hana - en ég trúi ekki öðru en að ég geti búið til eitthvað skemmtilegt tækifæri og jafnvel fengið aur fyrir. Auk þess er fínt að hún taki út pestartímabilið áður en ég verð búin að festa mig einhversstaðar, svo ég verði nú ekki rekin strax því barnið er alltaf veikt. Annars er ég að spá í að fara líka í skóla - bara nokkur kvöld í viku og smá um helgar, svo ég ætla ekki að sitja auðum höndum - nenni því bara ekki lengur :-) Alli kom heim úr fyrsta skóladeginum í dag, hann var að hitta hraðferðarbekkinn sinn og líst svona líka ljómandi vel á hann - hann verður m.a. að læra heimasíðugerð í vetur :-)
Annars er lítið að frétta - nú tekur bara við kjötbollur á miðvikudögum og svo er að endurvekja Naflaló, er það ekki??? Stelpur? Svanda? Komin í bæinn???