Og tvær tennur til!

Daman ákvað að gefa bróður sínum heilar tvær framtennur í afmælisgjöf á gamlárs - ekki nema von að barnið hafi verið órólegt og vaknað ansi oft ... þessar tennur eru nú ekkert lítið breiðar og þegar maður er orðin svona gamall þá er gómurinn orðin víst svolítið harður... svo þetta er komið. Einnig er að koma niður tönn við hliðina á framtönnunum svo þetta er allt að ryðjast...!
Annars vorum við að koma úr Sirkús! Stórasti Sirkus Íslands var með sýningu áðan í Hafnarfjarðarleikhúsinu og var ekkert smá gaman! Það var svooo gaman að GN hló og klappaði allan tímann og geri aðrir betur. Það tekur nú smá á að halda athygli einnar 11 mánaða ... og ekki síst foreldrana og ömmunar! Við skemmtum okkur öll konunglega og er frábært að heyra að það er uppselt á allar sýningarnar hjá þeim! Alda og Lee vinir okkar standa að þessu ásamt góðum félögum og gerðu þau þetta bara... af því bara:-*) Þau eru búin að vera með Sirkusskóla í allan vetur og gengið svo vel - Elsku Alda og Lee - innilega til hamingju með sýninguna!