Ojæja, það þokast allt í áttina, maður er bara orðin svo dofinn eftir svona marga daga. Okkur er þó gert ljóst að mamma sé ennþá í lífshættu og það getur brugðist til beggja átta... en hún er stöðug :-) Alex Skúli kom til Reykjavíkur í dag og ég bauð þeim feðgum á kaffihús í tilefni páskanna... bara svona til að gera eitthvað :-) Svo er Alli að lenda eftir einhverjar mínútur með Siggu frænku og hennar ektakvinnu... þeir eru í fríi á morgun frá skólanum en ég ætla að bregða mér í vinnuna. Lífið verður að halda áfram, allt verður að eiga sinn vanagang en ég get ekki beðið eftir því að það gerist í alvöru... að allt verði búið og fallið í ljúfa löð. Svo er Maggi bró að koma á laugardaginn... þá verður glatt í höllinni :Þ Vona bara að mamma verði komin með meðvitund ossona... kerlingin hlýtur að fara að vakna og drífa sig í gang... það er svo margt að gerast sem hún er að missa af... t.d. er Eiríka komin með verki svo það má búast við nýju barnabarnabarni eftir stuttan tíma... vonandi bara sem fyrst :-) Þangað til á morgun... blessbless... :s