Rokk og rómantík - eins og í gamla daga?
Við hjónaleysin skelltum okkur
saman út í gærkvöldi, en Heiða kom og vaktaði dömuna á meðan við skelltum okkur á tónleika sem tileinkaðir voru Alice in chains. Hef verið einlægur aðdáandi síðan Bjössi kynnti mér tónlist þeirra fyrir mörgum mörgum árum... menntaskólaárum að ég held. Kristófer úr Lights on the highway og Jenni úr Brain police voru brjálæslega góðir, sem og aðrir í þessu bandi sem bar soðið saman fyrir þetta gigg. Hrói var að sjálfsögðu að mixa og mættum við snemma með honum og Heiðdísi... bara svona til að fá örugglega gott sæti... neineineinei... allir í Reykjavík huxuðu örugglega það sama! Við gátum varla troðist inn og það var nó fokkings veij að fá sæti... að endingu svindluðum við okkur í boxið til Hróans og þar var amk einn stóll sem lúin mjólkandi kerling gat skvett annari rasskinninni upp á :-/ Þetta voru semsé ótrúlega góðir tónleikar.. en í fyrsta hléi vorum við hjónaleysin farin að ókyrrast enda hafði Nóa sofna óvenju snemma og ekkert vakna né rumskað á meðan við vorum fjarverandi. Það þótti mér vera fyrirboði um lognið á undan storminum... svo við kölluðum þetta bara kvöld, enda búin að vera ,,einstaklingar" í tæpa þrjá tíma. Af sjálfsögðu var daman steinsofandi í fasta svefni þegar við komum aftur og Heiða ekkert orðið vör við svo mikið sem hrotu frá henni allt kvöldið, svo hún hafði tékkað á hvort andardráttur væri ekki örugglega til staðar... bara svona djöst in keis :-) Ég vaknaði svo klukkan fjögur um nóttina og þótti nóg komið, enda að s p r i n ga (og mikið djöfull er það vont þegar það drýpur stanslaust úr búbbingunum) og náði til að láta dömuna amk rumska til að taka brjóstið (og mikið ósköp er það gott þegar losunartilfinningin kemur brjóstið) og skipti á henni. Svo steinsvaf hún til sjö... mikið óskabarn sem hún er.
Í gær fór ég á báða fyrrverandi vinnustaði mína, fyrst til JB til að kenna hvernig Internetið hjá þeim er uppfært og svo í Edduna til að sýna dömuna fallegu. Ógurlega gott að sjá framan í ,,gamla" liðið mitt á báðum stöðum, enda öðlingar í hverju sæti :-) Í dag er ég ekki með bílinn og er ógurlega glöð með það... því ég er hálfþreytt eftir þetta ,,skrall" í gær - þótt ég hafi gleymt að fá mér þennan bjór sem ég var búin að lofa mér... maður þarf greinilega að gíra sig í rólegheitunum upp í svona menningarforn eins og maður var í áður en daman kom til sögunnar.
Svo er bara vika í Afríkuferðina... mmmmm