Í dag kom Tommi frændi (sonur Fríðu Syss) í kaffivisité en hann er að halda til Eyja á morgun til að hjálpa til við að halda uppi röð og reglu þar um Verslunarmannahelgina... þau myndast svona agalega vel frændsystkynin :-) ... við ætlum aftur á móti að halda til hér í bænum um helgina... ég ætla að gera tilraun til að detta í það á morgun (tilraun #2) og Einar fær að fara út í kvöld í staðinn :)
... vonandi skemmta sér allir vel um helgina, ganga hægt um Gleðinnar dyr og muni eftir því sem gerðist um helgina :-)
Ætli það sé ekki best að setja nýjustu tölur hér inn líka en daman fór í mælingu og sprautun í morgun, hún 8 reyndar að fara þegar hún var fimm mánaða en þar sem við vorum stödd á Hornó þá var þessari mælingu frestað þar til nú...
Hún er semsé orðin: 7.860 grömm og 68 cm á hæð (eða lengd) ...
Fékk fína einkun en kúrfan hennar hefur heldur betur tekið kipp eftir að hún fór að fá að borða, hún lítur út eins og verðbólgan hér á Íslandi - liggur eiginlega lóðrétt! Við meigum fara að hætta þessu þurrmjólkurdæmi og gefa henni Stoðmjólk og daman fær nú bara sopa á næturnar þegar ég næ í hana upp í rúm til okkar... ég er rosalega dugleg við að setja hana aftur í rúmið sitt eftir gjafir en það hefur vel komið fyrir að við vöknum saman í hjónarúminu með pabba gamla... hvernig sem stendur á því... ekki er barnið farið að ganga í svefni?
Við hjónaleysin fórum í brúðkaup í gær út í Viðey og var Heiða að passa litluna á meðan. Við lögðum úr höfn kl. 15:30 og allt gekk vel framanaf, eða þar til daman vaknaði eftir örstuttan næturblund... og þá byrjuðu sko lætin! Heiða greyið hringdi í mig í áfalli korteri seinna og ljáði mér hljóðdæmi - sem var ekkert smá! Lungun höfðu verið öskruð úr líkamanum og daman var fjúríus úr mömmusýki - og akkúrat þá horfði ég á eftir ferjunni í land og ekki von á henni til baka fyrr en klukkutíma seinna :-( ... daman grét sig því í svefn eftir þrjú korter og lítið sem ég gat gert annað en að horfa á símann minn og bíða eftir jákvæðu sms-i... ég dreif mig svo í land því ég vildi sko ekki að barnið þyrfti að ganga í gengum þetta aftur - og akkúrat þegar ég kem heim þá var hún vöknuð aftur og gleðin sem skein úr augum barnsins var ólýsanleg :-/ ... því fór sem fór en ég náði að sjá brúðhjónin heita hvort öðru tryggð, ást og ég veit ekki hvað, borðaði góðan mat í frábærum félagsskap og náði að finna á mér í tja... korter held ég... :-)
Ekki veit ég hvernig þessar mæður fara að sem fara að vinna frá börnunum sínum sex mánaða - ég er amk alls alls ekki tilbúin né Nóan mín :-)
Komum heim úr enn einu ferðalaginu en það var alveg upp á fjöll. Fórum í helgarferð á Víðihól og hittum fjölskylduna þar, þ.e. legginn hans Einsa. Ógurlega gaman eins og alltaf að hitta fólkið okkar :-) Fullt af nýjum myndum í albúminu okkar og ferðasagan verður að bíða betri tíma... því það er bara allt allt of gott veður til að hanga inni í tölvunni. Ætla á línuskauta með Heiðu minni og svo er það grill og hvítvín hjá Áslaugu og Helga...
Í dag er dúllan okkar orðin fimm mánaða og Sævar Óli (Gummasonur) er þrem mánuðum eldri - upp á dag. Frændsystkynin hittust í gær og voru hýr og glöð að vanda - enda afburða glöð og krúttleg börn :-)
Annars er það helst að frétta að við erum aðeins að millilenda heima á þessu ferðalagi okkar, einn hringur í kringum landið að baki og annar í uppsiglingu. Þangað til ætla ég að þvo þvotta, raka á mér lappirnar, koma mjólkurframleiðslunni aftur á fullt (en það er ekkert auðvelt að vera á ferðalagi með mjólkurkú í eftirdragi) og láta dótturina finna rhytmann sinn aftur. Við förum svo upp á Víðihól um næstu helgi en þar er ættaróðalið hans Einsa og ætla allir að hittast þar, mála, þrífa og skemmta sér vel :-)
Annars auglýsi ég hér með eftir sólinni... hvar er hún eiginlega???